Útvarpsþáttastjórnendurnir Friðrik Ómar og Siggi Gunnars hafa verið að slá í gegn á samfélagsmiðlum á ferðum sínum á paradísaeyjunna Tenerife.
Þeir félagar hafa verið að slá í Karíóki, borðandi áhugaverðan mat og svo leigðu þeir sé rauða bjöllu til að skoða eyjuna betur.
Friðrik Ómar og Siggi Gunnars slógu í gegn á samfélagsmiðlum á ferð sinni um Tenerife en Friðrik var sjálfur duglegur að deila ferðalagi uppátækjasömu vinanna á instagram. Þau Eva Ruza og Yngvi Eysteins tóku stöðuna á Friðriki símleiðis frá Síðdegisþættinum, sem var staddur á flugvellinum á paradísareyjunni á leið til Íslands í gær.
Þar mátti meðal annars sjá félagana slá í gegn í karíókí, borða áhugaverðan mat og ferðast um Tenerife á rauðri bjöllu.
„Það stendur upp úr þegar Sigurður tekur að sér að leigja bíl og velur rauða litla bjöllu sem við komumst varla í. Mér fannst það náttúrulega yndislegt. Það var svolítið svona lúkkið á deginum og krúttlegt að sjálfsögðu. Við áttum alveg gjörsamlega geggjaðan dag,“ segir Friðrik Ómar í samtali við K100.
Þegar K100 hringdi í Friðrik var hann á heimleið til Íslands en hann tælar síðan að stoppa í Amsterdam og kikja á Eurovision gigg með Selmu Björnsdóttur.
„Það var mín ákvörðun. Ég ákvað að nýta tækifærið. Þetta eru svona heimsleikar í hommeríi þessa helgi. Þannig að ég ákvað að já, ég fékk ekki alveg nóg á Tenerife þannig að ég ætla að halda þessu áfram þarna,“ sagði Friðrik hlæjandi og olli því að Eva Ruza fékk hláturskast í beinni.
Spurður út í það hvort almenningur fái að fylgjast með þeirri ferð var hann hins vegar ekki alveg viss.
„Stundum dett ég út heilu dagana. Og ég meina svona í alvöru þá dett ég alveg út heilu dagana og set ekki neitt á instagram. Sem betur fer en ég get sagt þér að suma morgna vakna ég og fer á bað og er að pissa og hleyp svo í símann og hugsa með mér: Setti ég nokkuð eitthvað á instagram í gær?“ sagði Friðrik og uppskar mikinn hlátur í stúdíóinu.
„Þannig að maður verður að velja sína slagi krakkar, bætir hann við.
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér