Friðrik Ómar Hjörleifsson, söngvarinn geðþekki frá Dalvík, var gestur Einkalífsins á Vísi nýverið þar sem hann fór um víðan völl. Þar greindi hann meðal annars frá stórkostlegum lífstílsbreytingum fyrir um 16 árum síðan.
Hann var orðinn tæplega 100 kíló en léttist um þriðjung líkamsþyngdar sínar á aðeins einu ári: „Ég kem hingað suður árið 2003 og byrja borða skyr, sem var voðalega vinsælt þá. Það virkaði þó það sé nú töluvert mikill sykur í því,“ sagði Friðrik í Einkalífinu.
Því næst greinir hann frá því að hafa fengið sér einkaþjálfara og nánast áður en hann vissi af hafði hann misst heil 33 kíló! „Ég fer úr 96 kílóum niður í 63 kíló á svona einu ári,“ segir hann.
Um þær aðferðir sem hann beitti segir Friðrik þetta: „Ég fór ekki í hjáveituaðgerð og gerði þetta bara sjálfur. Í minningunni var ég ekki að svelta mig eða neitt svoleiðis. Það var bara eitthvað svo mikið að gerast hjá mér. Ég var að undirbúa að koma út úr skápnum, ég var hrifinn af strák og þetta gerist allt saman í einum graut. Ég missi þarna sveindóminn 25 ára og hafði ekki verið með konu eða neitt á þessum tíma.“
Friðrik kom út úr skápnum árið 2006 en segist hafa verið búinn að segja móður sinni og vinum frá því áður: „Þau bara fóru að hlægja og vissu þetta tíu árum áður. Þetta var að einhverju leyti erfitt skref því maður býr til svo mikið í hausnum á sér og ákveður fyrir fram hvernig fólk bregst við.“