Friðrik Ómar afhjúpar viðbrögð föður síns: „„Ég kem inn í stofu og segi: Pabbi, ég er samkynhneigður“

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur upplýst um hvernig hann kom út úr skápnum fyrir föður sínum þegar Friðrik var 16 ára gamall. Hann segir í viðtali á RÚV að hann hafi fyrst sagt vinum sínum, síðar móður og systur en beðið með að segja pabba sínum.

„Það var ekki fyrr en ég var orðinn tuttugu og fimm ára. Ég var einkabarnið hans, það var erfiðast. Ég beið með það.“

Friðrik segir að þeir feðgar séu ekki sammála um margt, en þeir hafi gaman að því að skiptast á skoðunum. Faðir Friðriks ætlar til dæmis ekki að þiggja bólusetningu og feðgarnir hnakkrífast um það. „Hann elskar líka Donald Trump og beisiklí allt sem ég þoli ekki. Það er smá togstreita ég viðurkenni það, hann er pabbi minn og ég vil að hann sé öruggur og ég veit að bólusetning getur hjálpað honum. En hann ætlar ekki að gera það og einhvern veginn verður maður að virða það.“

Faðir Friðriks sat inn í stofu að tefla þegar Friðrik Ómar steig loksins skrefið.

„Ég kem inn í stofu og segi: Pabbi, ég er samkynhneigður. Þá snýr hann höfði að mér, horfði á mig og sagði: Jæja, þá er maður orðinn útdauður með það sama,“ segir Friðrik og hlær. „En síðan var þetta ekki neitt mál. Ég eignaðist kærasta og þeir urðu perluvinir, allt í góðu.“

Friðrik segir að treginn við að segja föður sínum hafi verið óþarfur. „Það er það sem stoppar mann oft af, þetta getur verið alveg fáránlegt. Svo segirðu viðkomandi og hann er bara: Flott hjá þér vinur minn, og maður er bara: Ertu að grínast? Er ég búinn að vera að vera að bíða með þetta í öll þessi ár?“