Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór sagði heldur betur skondna sögu er hann mætti sem gestur í útvarpsþættinum Ísland Vaknar á K100. Hann lýsti þar frekar vandræðalegu augnabliki í Dyrfjallahlaupi á Borgarfirði eystra í fyrra sem sem hann tók 12 km án þess að hafa nokkurn tímann tekið þátt í fjallahlaupi áður og tókst að móðga mann á leiðinni.
„Ég var held ég í topp 10, þá kemur þetta fjall. Það er gjörsamlega lóðrétt. Ég var bara: Heyrðu, hvaða grín er þetta fjall? Ég var svo ógeðslega lengi upp þetta fjall,“ sagði Friðrik Dór hlæjandi í þættinum.
Þegar það kom að því hins vegar að hlaupa niður missti hann stjórn á hlaupunum og náði algjörlega óvart að móðga annan hlaupagarp.
„Ég hef aldrei hlaupið niður einhverja brekku og þetta var hálf stjórnlaust hjá mér allt saman. Ég hlussaðist niður þarna. Það var maður fyrir framan mig og ég tók óvart fram úr honum – ég ætlaði ekki að fara fram úr honum. Ég var búin að ákveða að þetta væri gaurinn sem ég ætlaði að elta. Ég hef enga stjórn á því sem ég er að gera og fer fram úr honum og bara: „Heyrðu, ég get ekki að þessu gert, sorrí,“ – ég sagði eitthvað svona við hann,“ sagði Friðrik í þættinum.
„Þetta var hræðilegt sko,“ bætti hann við og uppskar mikinn hlátur fyrir í þættinum.
Hægt er að horfa á frásögn Frikka Dórs hér.