Friðjón vonsvikinn út í Eyþór: „Þjóðþekktur maður eins og hann…“

Friðjón R. Friðjónsson, almannatengill og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum, er vonsvikinn út í Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna í borginni.

Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti í gær þá tillögu að stuðst verði við svokallað leiðtogaprófkjör við val á lista fyrir komandi sveitastjórnarkosningar í stað hefðbundins prófkjörs. Ekki er um endanlega niðurstöðu að ræða, eins og bent er á í frétt Morgunblaðsins í dag, því tillagan verður lögð fyrir sjö hundruð manna fulltrúaráð.

Friðjón – eins og margir aðrir Sjálfstæðismenn – er vonsvikinn með þessa niðurstöðu og þá skýtur hann á Eyþór fyrir að mótmæla ekki þessum fyrirætlunum.

„Það eru mikil vonbrigði að stjórn Varðar, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hafi óvænt snúið við fyrri ákvörðun um að halda almennt prófkjör. Þátttaka í leiðtogaprófkjörinu fyrir tæpum 4 árum var sú slakasta fyrir borgarstjórnarkosningar frá upphafi. Maður skyldi ætla að stjórn Varðar myndi leita allra leiða til að fá fjölmennt og þróttmikið prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Guð veit að við þurfum á því að halda að skapa stemmingu fyrir kosningarnar,“ segir Friðjón í færslu á Facebook-síðu sinni.

Hann segir að það valdi sérstökum vonbrigðum að Eyþór hafi ekki mótmælt þessum fyrirætlunum.

„Þjóðþekktur maður eins og hann ætti að vilja allt til þess vinna að fá fjölmennt prófkjör og leggja störf sín í hendur kjósenda. Almennt henta stór prófkjör þeim þekktari.

Það þurfa að vísu 2/3 fundarmanna á fundi fulltrúaráðsins í byrjun næsta árs að samþykkja og það er ekki víst að sá fundur verði jafn lítt hugumprúður og meirihluti þeirra sem mættu á stjórnarfund Varðar í kvöld,“ sagði Friðjón í færslu sinni í gærkvöldi.