Frið­jón veður í Kára, Styrmi og Gunnar Smára: „Þeir eru allir eins“ – Tals­menn for­tíðar með for­ræðis­hatt

Frið­jón R. Frið­jóns­son segir sósíal­isma vera blóðugustu og ó­geð­felldustu hug­mynda­fræði sögunnar sem hafi kostað fleiri manns­líf en nokkur plága. Þá segir Frið­jón að við fall Sovét­ríkjanna hafi sósíal­isminn drepist og í kjöl­farið hafi fylgt „ein­hver besti tími mann­kyns­sögunnar.“ Þessu heldur Frið­jón fram í pistli í Við­skipta­blaðinu og segir að leið Sjálfstæðisflokksins og kapítal­ismans þá réttu til að sigrast á Co­vid-kreppunni. Þá segir hann Gunnar Smára Egils­son, for­mann Sósíal­ista­flokksins, Kára Stefáns­son for­stjóra Ís­lenskrar erfða­greiningar og Styrmi Gunnars­son fyrr­verandi rit­stjóra Morgun­blaðsins vera tals­menn for­tíðarinnar.

Frið­jón er annar eig­andi KOM og starfar sem fram­kvæmda­stjóri fyrir­tækisins. Hann hefur sterk tengsl inn í Sjálf­stæðis­flokkinn og hefur boðið sig fram í próf­kjörum hjá flokknum. Þá hefur hann starfað sem að­stoðar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar.

Frið­jón ritar pistil í Viðskiptablaðið og segir að ekkert land í heiminum eigi meira undir frjálsum við­skiptum og frelsi í sam­skiptum þjóða en Ís­land.

„Samt heyrast alltaf raddir hér um að við eigum allra helst að stunda sjálfs­þurftar­bú­skap, nú síðast í nafni mat­væla­öryggis. Aðrir hafa verið þess full­vissir að út­lendingar myndu soga allt raf­magnið úr landinu og eftir sætum við króknandi úr kulda (já þessi líking heyrðist á fundi í fyrra),“ segir Frið­jón og bætir við að tals­menn for­tíðarinnar séu mið­aldra karlar.

„Það skiptir ekki máli hvort þeir heita Styrmir, Guðni, Kári eða Gunnar, þeir eru allir eins. Þeir horfa með eftir­sjá til þess tíma þegar allt var ein­faldara, þá voru tvö lið, tvö kyn, tveir litir í sjón­varpinu og einn á and­litum Ís­lendinga. En tími tals­manna for­tíðarinnar er liðinn, sama hvaða for­ræðis­hatt þeir bera í dag,“ segir Frið­jón og bætir við:

„Til þess að komast úr kreppunni sem Co­vid er að senda okkur í verðum við að vera á­fram tals­menn frjálsra við­skipta og stuðnings­menn hins frjálsa markaðs­hag­kerfis, hvort sem það er þorskur, norður­ljósin, raf­magn eða hug­vitið sem við ætlum að selja til að bæta líf okkar.“

Þá bætir Frið­jón við að nauð­syn­legt sé að lækka skatta.

„Þannig leysum við úr læðingi kraftinn í frelsinu og hug­vitinu,“ segir Frið­jón og bætir við að lokum:

„Tími sósíalískra byltingar­foringja á að vera löngu liðinn, sem betur fer, því ekki viljum við endur­taka báðar plágurnar.“