Frið­jón segir upp­byggingu í Laugar­dal stranda á Degi B. og borginni

Frið­jón R. Frið­jóns­son, vara­þing­maður og fram­bjóðandi í 2. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokksins, sakar Dag B. Eggerts­son um að ýta á undan sér mikil­vægu verk­efni Reykja­víkur­borgar að sinna upp­byggingu þjóðar­leik­vanga í Laugar­dal.

Frið­jón skrifar grein á Vísi. „Borgar­stjóri hefur ýtt málinu á undan sér og á sama tíma komist upp með að van­rækja í­þrótta­að­stöðu Þróttar og Ár­manns, sem eru núna með gríðar­lega um­fangs­mikið barna­starf sem mun aukast enn meira með á­kvörðun um að Voga­byggð verði á fé­lags­svæði Þróttar.“

Frið­jón bendir á að á­hugi sé að byggja þjóðar­leik­vang í Kópa­vogi. „Ríkið hefur sam­þykkt að vera með í fjár­mögnun leik­vanganna. Aftur á móti strandar þetta allt á því að borgin taki á­kvörðun um hver að­koma hennar eigi að vera.“

„Ef við viljum að þjóðar­leik­vangar landsins séu í höfuð­borginni, þá þarf borgar­stjórn að spýta í lófa og sýna að henni er al­vara. Annars byrjum við von bráðar að leika lands­leiki fyrst er­lendis og síðan í Kópa­vogi eða Kefla­vík.