Friðjón R. Friðjónsson, nýr borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafði rétt fyrir sér þegar hann mætti í Fréttavaktina á Hringbraut þann 11. apríl síðastliðinn.
Friðjón mætti í þáttinn þar sem Íslandsbankasalan svokallaða var rædd og meðal annars komið inn á gagnrýni Lilju Alfreðsdóttur, menningarráðherra og varaformanns Framsóknarflokksins, á söluna. Ekki þykir algengt að ráðherrar hér á landi gagnrýni samráðherra sína en Lilja fer sínar leiðir og stendur föst á sínu.
Í þættinum sagði Friðjón að Lilja gæti með „sólóútspili“ sínu átt á hættu að einangrast eftir gagnrýni hennar. Lilja gæti átt á hættu að lenda í vandræðum með að afla stuðnings við mál eftir gagnrýnina. Þetta virðist hafa ræst eins og komið er inn á í frétt Fréttablaðsins í dag.
Nú hefur fjármálaráðuneytið, þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og ábyrgðarmaður bankasölunnar, gegnir ráðherradómi í bréfi til atvinnuveganefndar Alþingis gagnrýnt frumvarp Lilju um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar. Þar kemur meðal annars fram að frumvarpið sé ófjármagnað og samráð skorti við kynningu þess.
„Staða Lilju er áhugaverð, þegar Lilja þarf á einhverju að halda í framtíðinni frá félögum sínum í ríkisstjórn, ef svo ber undir, er ekkert víst að hún eigi mikið inni, hvorki hjá Bjarna, Katrínu né Sigurði Inga,“ sagði Friðjón og virðist hafa haft nokkuð til síns máls.