Frið­jón gerir grín að Ragnari: Gagn­rýndi æsku­dýrkun – Varð sjálfur banka­stjóri 31 árs

„Ragnari Önundar­syni er upp­sigað við ungt fólk, telur það þurfa "afla sér starfs- og lífs­reynslu áður en það biður um æðsta frama". Annað en sá sem varð 31 árs banka­stjóri. Unga fólkið nú­til­dags!“

Þetta sagði Frið­jón R. Frið­jóns­son, al­manna­tengill og á­hrifa­maður í Sjálf­stæðis­flokknum, á Twitter-síðu sinni á dögunum. Þar svaraði hann Face­book-færslu Ragnars Önundar­sonar, banka­manns og fyrr­verandi banka­stjóra. Ragnar hafði þá deilt frétt Hring­brautar þar sem fjallað var um um­mæli Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttur og gagn­rýni hennar á Sjálf­stæðis­flokkinn.

Sjá einnig: Þor­björg Helga: „Það er ekki í lagi með Sjálf­stæðis­flokkinn“

„Sjálf­stæðis­flokkurinn er enn í mesta basli í sínum kvenna­málum, al­gjör hrak­falla­bálkur. Nú tjáir þessi kona sig, en hún er ein þeirra sem fóru erindis­leysu fyrir flokkinn. Það sem flokkurinn þarf að gera er að hætta hégóma­skapnum og snúa sér aftur að pólitík. Í eina tíð aug­lýstu menn bíla með því að mynda létt­klæddar ungar og glæsi­legar konur sitjandi á húddinu, í von um að ná að draga augu karl­manna að bílnum. Að beita þessari að­ferð á stjórn­mála­flokk á 21. öldinni er vægast sagt undar­leg tíma­skekkja. Frændur okkar í Skandinavíu kjósa ekki flokka eftir út­liti for­ystu­fólksins, ekki þarf annað en líta á myndir af for­sætis­ráð­herrunum þeirra til að sann­færast um þetta. Unga fólkið sem ver miklum hluta af tíma sínum fyrir framan spegilinn ætti að afla sér starfs- og lífs­reynslu áður en það biður um æðsta frama. Kominn er tími á upp­gjör við aug­lýsinga- og yfir­borðs­mennskuna.“

Frið­jón bendir í færslu sinni á það að Ragnar hafi sjálfur orðið banka­stjóri Iðnaðar­banka Ís­lands þegar hann var 31 árs. Birtir hann skjá­skot af frétt frá árinu 1984. Færsla Frið­jóns vakti tals­verða at­hygli og var Þor­björg Helga sjálf meðal þeirra sem skrifuðu at­huga­semd við hana.

„Takk fyrir vörnina gamli vinur, var að sjá þetta fyrst núna. Ragnari er mjög illa við mig og hefur verið lengi. Enda er ég kona.“