Friðjón fjarlægði byssumynd

Friðjón R. Friðjónsson, almannatengill og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. Myndin var þó ekki lengi uppi og virðist hafa verið fjarlægð skömmu eftir að hún birtist.

Friðjón varð fimmtugur þann 18. apríl á síðasta ári en í færslu sinni sagðist hann eiga vini sem lofuðu honum byssu í tilefni stórafmælisins. Miðað við myndina og færsluna varð úr að Friðjón fór í Hlað þar sem hann skoðaði haglabyssur. Valdi hann eina sem hann birti mynd af sér með og var hann nokkuð óárennilegur á að litast.

„Þessi varð fyrir valinu og nú er bara að láta menn efna og bæta aðeins við,“ sagði hann við myndina sem hvarf.

Friðjón býður sig fram í 4. sætið á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, en prófkjörið fer fram á föstudag og laugardag. Kosið er um 6-8 efstu sætin í prófkjörinu og er óhætt að segja að spennan sé töluverð.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Birgir Ármannsson, Brynjar Níelsson, Sigríður Á. Andersen, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hildur Sverrisdóttir, Kjartan Magnússon og Diljá Mist Einarsdóttir eru í hópi þeirra sem gefa kost á sér í prófkjörinu.