Friðjón R. Friðjónsson, framkvæmdastjóri KOM ráðgjafar og borgarfulltrúaefni Sjálfstæðismanna, er hálf undrandi á framgöngu Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra.
Lilja steig fram í viðtali við Morgunblaðið í gær og gagnrýndi það hvernig staðið var að útboðinu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Sagði Lilja að Bjarni bæri ábyrg á málinu en ekki Bankasýslan og þá hefði hún sjálf viðrað varnaðarorð vegna útboðsins.
Friðjón sagði á Fréttavaktinni á Hringbraut í gær að Lilja gæti nú átt eftir að lenda í vanda þegar hún leitar stuðnings innan ríkisstjórnarinnar. Staða hennar sé áhugaverð svo ekki sé fastar að orði kveðið.
„Þegar Lilja þarf á einhverju að halda í framtíðinni frá félögum sínum í ríkisstjórn ef svo ber undir er ekkert víst að hún eigi mikið inni, hvorki hjá Bjarna, Katrínu né Sigurði Inga,“ sagði Friðjón sem kallar framgöngu Lilju „óvanalegt sólóútspil.“ Aðeins tíminn muni leiða í ljós hvort hún einangrist.
„Ég man ekki eftir svona í nýliðinni tíð,“ segir hann.