Friðjón: Ekki sjálfgefið að Sjálfstæðisflokkur starfi áfram með VG eftir kosningar

Friðjón Friðjónsson, Sjálfstæðismaður og framkvæmdastjóri KOM ráðgjafar, segir að þó að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, sé mæt og vel gerð manneskja þá sé grunnforsenda flokks hennar algerlega andstæð öllu því sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.

Friðjón segir þetta í pistli sem birtist á vef Vísis í morgun og virðist hann vera að biðla til flokksins að líta annað en til VG eftir næstu kosningar. Ef marka má skoðanakannanir stefnir allt í að Sjálfstæðisflokkurinn verði langstærsti flokkurinn á þingi eftir kosningarnar í haust.

Í grein sinni stiklar Friðjón á stóru um sögu Sjálfstæðisflokksins hér á landi og bendir á að honum hafi alltaf borið gæfu til að vera hófsamur og skynsamur. Hann segir þó að flokkurinn þurfi að gæta sín á þeim sem halda því fram að hægt sé að bæta velferðarþjóðfélagið með því að umbylta því og gerbreyta. Nefnir hann stjórnarskrármálið í því samhengi.

Friðjón segir að eftir kosningar megi flokkurinn ekki hverfa inn í þægindi vanans.

„Við þurfum að sækja fram, auka velmegun og skapa skilyrði fyrir tækifæri. Við eigum að gera kröfu á samstarfsflokka um að vera opin fyrir breytingum. Samstarf við stjórnlynda flokka er erfitt og getur gert okkur værukær. Þótt forsætisráðherra sé mæt og vel gerð manneskja þá er grunnforsenda flokks hennar algerlega andstæð öllu því sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Samstarf á því ekki að vera sjálfgefið. Til lengri tíma er feigð í faðmlagi við flokka sem deila ekki virðingu fyrir eignarrétti og atvinnufrelsi,“ segir Friðjón sem var eitt sinn aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.