Freyr: „Svona sárs­auki og erfið­leikar geta tætt mann í sundur og eyði­lagt mann“

„Við gengum í gegnum erfið­leika, ég og Anna konan mín og fjöl­skyldan. Við áttum von á okkar þriðja barna á þar síðasta ári. Barnið okkar dó í fæðingu sem er erfið og sár lífs­reynsla. Svona sárs­auki og erfið­leikar geta tætt mann í sundur og eyði­lagt mann“.

Þetta segir Freyr Eyjólfs­son tón­listar­maður sem starfað hefur í fjöl­miðlum hin seinustu ár. Hann er nú upp­lýsinga­full­trúi endur­vinnslu­fyrir­tækisins Terra. Í þætti Sigur­laugar M. Jónas­dóttur á Rás 1, Segðu mér, opnaði Freyr sig um sína erfiðustu lífs­reynslu. Fyrir hálfu öðru ári misstu Freyr og kona hans, Hólm­fríður Anna barn í fæðingu.

„Svona sárs­auki getur bara tætt mann í sundur og eyði­lagt. En ef maður tekst á við það með ást og kær­leika og leitar eftir stuðningi, þá fer maður ein­hvern veginn í gegnum þetta,“ segir Freyr og bætir við að slík reynsla marki fólk fyrir lífs­tíð. Sárs­aukinn sé djúpur enn geti einnig dýpkað fólk.

Að­spurður hvort þetta hafi breytt þeim sem fjöl­skyldu svarar Freyr:

„Nú eigum við tvö börn á lífi og eitt engla­barn. [...] Maður fer í svona djúp, kalt erfitt djúp. Sárs­auki er líka eins og eldur, getur brennt mann upp til agna en líka styrkt mann.

Þá tekur Freyr dæmi um hvernig lífs­reynslan hafi breytt honum:

„Stundum þegar maður er á kaffi­húsi og kaffi­bollinn kemur ekki alveg á stundinni, þá þarf maður ekki endi­lega að hella sér yfir við­komandi mann­eskju. Það getur bara vel verið að sú manneskja hafi átt mjög erfiðan dag eða eigi mjög erfiðan dag.“

Hann bætir við að missa barn sé mesti sárs­auki lífsins.

„En lífið er að mörgu leyti sárs­auki, lífið er bara erfitt, og þess vegna þurfum við líka að sækja í lífs­gleðina og kær­leikann,“ segir Freyr og bætir við: „Við finnum það með öðru fólki, ef maður tengist ást­vinum sínum og fjöl­skyldu á sterkan hátt fær maður lífs­kraft og hjálp þar.“

Hér má lesa viðtalið við Frey í heild sinni.