Freyr Eyjólfsson, útvarpsmaður til margra ára og nú samskiptastjóri, segist sakna gömlu jólanna, eða jóla æsku sinnar eins og hann orðar það á Twitter.
„Ég fíla einföld jól. Jól æsku minnar: Á Þorláksmessu voru allar gjafir keyptar og jólatré. Á aðfangadag vann pabbi til hádegis á meðan við pökkuðum og skreyttum jólatréð. Keyrðum út pakkana á meðan steik fór í ofn. Jólaboð hjá afa og ömmu á jóladag. Afgangar annan í jólum. Búið.“
Það eru eflaust margir sem geta tekið undir þetta hjá Frey enda jólastressið án nokkurs vafa farið að gera vart við sig á einhverjum heimilum, þó þessi jól verði öðruvísi en oft áður af augljósum ástæðum.
Færsla Freys hefur vakið talsverða athygli og umræður og segir Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar, til dæmis: „Að kaupa allir gjafir á Þorláksmessu hljómar eins og algjört stress helvíti.“
Á þeim árum voru hlutirnir ef til vill auðveldari en þeir eru í dag eins og Freyr bendir á. „4 búðir á Laugaveginum í 50 metra radíus. Bókabúð MM, Fataverslun Guðsteins, Skífan og Liverpool (dótabúð). Engin skata, jólahlaborð eða jólatónleikar.“
Hann segir svo í einum stað í þræðinum:
„Við erum bara búin að tjúna okkur upp í sturlaða geðveiki með þessi jól. Það þarf að kötta þetta niður. Endurhanna jólin. Lítum t.d. til páskanna - mjög einföld og slök hátíð.“
Ég fíla einföld jól. Jól æsku minnar: Á þorláksmessu voru allar gjafir keyptar og jólatré. Á aðfangadag vann pabbi til hádegis á meðan við pökkuðum og skreyttum jólatréð. Keyrðum út pakkana á meðan steik fór í ofn. Jólaboð hjá afa og ömmu á jóladag. Afgangar annan í jólum. Búið.
— Freyr Eyjólfsson (@FreyrEyjolfsson) December 16, 2020