Freyja spyr hve­nær Brynjar ætli að beita eigin hug­mynda­fræði á sjálfan sig

Freyja Haralds­dóttir segir það fyndið að Brynjar Níels­son vilji ólmur rann­saka ör­yrkja, í nýrri Face­book færslu þar sem hún bregst við ný­legum um­mælum Brynjars um þjóð­fé­lags­hópinn.

Brynjar vakti mikla at­hygli á dögunum þegar hann mætti í pod­cast­þátt Sölva Tryggva­sonar og tjáði sig um mál ör­yrkja. Þar sagðist hann finna mikið til með fólki sem eru allar bjargir bannaðar, þeir þurfi hins­vegar sjálfir að bera ein­hverja á­byrgð. Sagði hann fjölda ör­yrkja og fólks á at­vinnu­­leyis­bótum allt­of mikinn.

„Í ör­orku er nánast veldis­­vöxtur,“ segir Brynjar. Það þurfi að skoða þetta, þó um­­ræðan sé við­­kvæm. „Það er stundum eins og það megi ekki taka um­­ræðu um svik í al­manna­­trygginga­­kerfinu, af því að þá er verið að ráðast á þá sem standa höllum fæti og menn setja bara alla ör­yrkja á sama stað,“ segir Brynjar.

„Ef þróunin verður þannig að á hverjum skatt­­greiðanda hvílir einn ör­yrki og einn aldraður, þá er það orðið ansi mikið og eitt­hvað sem gengur auð­vitað ekki til lengdar. Ef þeim sem nettó greiða skatt heldur stöðugt á­­fram að fækka, þá erum við auð­vitað ekki lengur sjálf­bær og þá þarf að grípa til að­­gerða.“

Brynjar sagt sjálfur að hann nenni ekki að mæta

Freyja, sem undan­farin ár hefur vakið at­hygli fyrir skel­egga fram­göngu sína í bar­áttu fyrir mann­réttindum fatlaðs fólks lætur sér greini­lega fátt um finnast um skoðanir Brynjars.

„Það er svo fyndið að Brynjar Níels­son, sem nennir ekki að mæta í vinnuna því honum finnst það til­gangs­laust, eins og hann hefur greint frá opin­ber­lega, vilji samt ólmur rann­saka ör­yrkja því að hann er viss um að þessi hópur nenni bara ekki að vinna.

Spurning hve­nær hann vill beita eigin hug­mynda­fræði á sjálfan sig.“

Það er svo fyndið að Brynjar Níelsson, sem nennir ekki að mæta í vinnuna því honum finnst það tilgangslaust, eins og...

Posted by Freyja Haraldsdóttir on Friday, 4 December 2020