Freyja ótta­slegin eftir nóttina: „Ef þú átt barn sem sefur úti í vagni þá myndi ég hugsa mig tvisvar um“ - Myndband

Freyja, íbúi í Mos­fells­bæ og nagránnar hennar voru ótta­slegnir eftir ó­hljóð og og drunur heyrðust um í hverfinu að nóttu til fyrir nokkrum dögum.

Í færslu Freyju í Face­book hóp íbúa í Mos­fells­dals eru í­búar sagðir óttast mjög minka­far­aldur í bænum og hafa hænsna- og dúfna­eig­endur orðið fyrir miklum skaða síðustu daga.

„Síðast­liðna viku hefur minkur, ekki i ein­tölu heldur fleir­tölu, drepið hænur í 2 kofum í Reykja­bygg­d a sitt­hvorum enda hverfisins og heyrði ég af dúfna fjölda­drápi í

Mos­fells­dal í gær. Þetta er búr­minkur sem kann ekki ad bjarga ser vel í snjófarginu svo þeir eru ad sækjast í ljós, hlýju og manna­byggðir. Koma á gluggana hjá fólki og teygir sig að birtunni,“ segir Freyja í færslu sinni og varar bæjar­búa við.

„Þeir virðast vera agressi­vari núna í snjónum ad komast inn hjá fólki. Ef þú átt barn sem sefur úti í vagni, þá myndi ég hugsa mig tvisvar um að láta barn í vagni út án eftir­lits á meðan þetta er svona. Jafn­vel ekki setja litla hunda eina út í langan tíma bundna. Minkur drepur sér ekki bara til matar heldur drepur hann allt kvikt að gamni sínu. Þessi minka­grey líta út gæf og krútt­leg en eru þvi miður allt annað en það.“

Og með færslunni birti Freyja mynd­band af minki sem hún fann á úti­pallinum sínum ný­verið. „Hann óð gargandi á móti mér þegar hann var króaður af,“ bætir Freyja við.

Mynd­bandið sem hún birti með má sjá hér að neðan og er hljóði vægast sagt ekki skemmti­leg til að vakna við.