Frétta­flutningur af áfengi á leik­degi veldur usla: „Vonandi hella þær sig bara fullar, þoli ekki þetta for­ræðis­hyggju­bull“


Ís­lenska kvenna­lands­liðið á mögu­leika á að komast á HM í knatt­spyrnu í kvöld ef liðið vinnur eða gerir jafn­tefli við Holland í Utrecht. Það yrðu afar merk tíma­mót í sögu ís­lenskrar knatt­spyrnu. Tapi liðið þarf það að fara í um­spil í októ­ber.

Ef það gengur eftir verður kampa­víns­flaska í boði KSÍ opnuð sam­kvæmt Vísi.

Í fyrra var sam­þykkt vinnu­regla hjá stjórn KSÍ að á­fengi sé ekki veitt í keppnis­ferðum á því sé gerð undan­þága þegar frá­bær, í­þrótta­legur árangur náist. Sæti á HM fellur hik­laust undir þá skil­greiningu.

Það að drukkið sé á­fengi í lands­liðs­ferðum hefur dregið mikinn dilk á eftir sér á síðustu misserum því tveir lands­liðs­þjálfarar hafa orðið að víkja í kjöl­far á­fengis­neyslu í lands­liðs­ferðum. Það eru Eiður Smári Guð­john­sen, fyrr­verandi að­stoðar­lands­liðs­þjálfari karla, og for­veri nú­verandi lands­liðs­þjálfara kvenna, Jón Þór Hauks­son.

Hall­bera Guð­ný Gísla­dóttir, sem lagði skónna á hilluna með lands­liðinu eftir EM í sumar, er ekki á­nægð með um­fjöllun um þessi mál.

„Á mögu­­lega stærsta leik­­degi kvenna­lands­liðsins frá upp­­hafi er eðli­­lega verið að skrifa frétt um það hvort full­orðið fólk ætli sér virki­­lega að skála í kampa­víni ef það kemst á HM í fyrsta skipti. Ja­hérna­hér,“ skrifar Hall­bera.

Freyr Alexanders­son, fyrrum lands­liðs­þjálfari, skrifar „Ég verð brjálaður ef það verður kampa­vín. Það er spilað í Hollandi.Það á skála Í Hein­eken,“ skrifar Freyr.

Hilmar Jökull, með­limur Tólfunnar, leggur einnig orð í belg: „Vonandi hella þær sig bara fullar og hafa gaman af þessu, þoli ekki þetta for­ræðis­hyggju­bull“