Tryggingafélagið TM frestaði umsókn konu um líf- og sjúkdómatryggingu vegna óljósra aukaverkana af bóluefni. Greint er frá þessu á vef Kjarnans þar sem birt er svar TM við umsókn konunnar:
„TM líftryggingar hf. hefur haft umsókn þína um líf- og sjúkdómatryggingu til skoðunar. Það er niðurstaða áhættumats félagsins að það verður því miður að fresta henni vegna óljósra aukaverkana af bóluefni. Félagið er reiðubúið að skoða nýja umsókn frá þér síðar.“
Konan sagði að hún hefði fundið fyrir hjartsláttartruflunum eftir bólusetningu og að blæðingar hefðu orðið óreglulegar.
VÍS og Sjóvá kannast ekki við að hafa frestað eða hafnað umsóknum um tryggingar. Þá kannast Embætti landlæknis ekkert við svona mál.