Framsóknarmenn sagðir harðir á að Dagur láti sér formennsku í borgarráði nægja

Meirihlutaviðræður Framsóknarflokks, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar í borginni eru sagðar hafa gengið ágætlega síðan þær hófust formlega síðastliðinn miðvikudag.

Morgunblaðið fjallar um viðræðurnar í blaði sínu í dag en í umfjölluninni kemur fram að flokkarnir hafi ákveðið að geyma viðræður um stærstu málin, til dæmis umræðuna um hver verður borgarstjóri.

Í fréttaskýringu Andrésar Magnússonar í Morgunblaðinu í dag segir hann að viðmælendur blaðsins séu ekki á eitt sáttir um skynsemi þess að skilja þessa stóru umræðu eftir. Borgarstjórastólinn sé veigamikið embætti og geti aldrei orðið afgangsstærð í viðræðum um meirihluta.

„Fyrir Einar Þorsteinsson ætti málið að vera einfalt. Hans helsta kosningamál voru breytingar í borginni, ekki síst á forystu hennar, og hann getur ekki kvartað undan viðbrögðum kjósenda, en Framsókn hlaut tæp 19% atkvæða, litlu minna en Samfylking með sín 20%,“ segir Andrés í fréttaskýringu sinni og bætir við að Einar geti varla sest að samningum við gamla meirihlutann án þess að gera kröfu um sýnileg umskipti.

„Sama hvaða árangri Framsókn telur sig ná um málefnin, þá getur Einar ekki sagt kjósendum sínum að hann hafi náð markmiðum um breytingar sitji Dagur áfram sem kóngur í ráðhúsi sínu. Úr horni Samfylkingar heyrast ýmsar hugmyndir um hvernig deila megi embættinu á kjörtímabilinu, en framsóknarmenn eru harðir á að Dagur verði að láta sér formennsku í borgarráði nægja, líkt og hann hafi gert sér að góðu í tíð Jóns Gnarrs.“