Þrír þingmenn Framsóknar lögðu fram frumvarp til breytingar á ýmsum lögum sem varðar áfengi í síðustu viku. Mikið hefur verið fjallað um frumvarpið þó einna helst vegna þess að það er nær orðrétt eins og frumvarpið með Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra lagði fram fyrir einu ári síðan. Markmið frumvarpsins er að styðja við smábrugghús og innlenda áfengisframleiðslu, meðal annars með því að leyfa framleiðendum að selja vöru sína á framleiðslustað.
Í frumvarpi framsóknarmanna, ólíkt frumvarpi dómsmálaráðherra, er að finna þak á hversu mikið magn af bjór má versla af smábrugghúsum á framleiðslustað. Þar segir til dæmis að sé um bjór að ræða sem er með 6 prósent vínandamagn má kaupa kippu af bjór. Sé rúmmál hreins vínanda bjórsins um 6 til 13 prósent má aðeins kaupa þrjá bjóra.
Ríkistjórnin, sem Framsókn er hluti af, hefur nú þegar samþykkt frumvarp Áslaugar en þingmenn Framsóknar ætla engu að síður að reyna koma þingmannafrumvarpinu í gegn. Nú hefur Framsóknarflokkurinn gripið í það ráð að borga fyrir auglýsingar á samfélagmiðlum til að vekja athygli á frumvarpinu sínu.
Varaþingmaðurinn Þórarinn Ingi Pétursson sem er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er þar í mynd við hliðin á texta sem sýnir þær örfáu breytingar sem frumvarpið hefur umfram það frumvarp sem dómsmálaráðherra hefur unnað í eitt og hálft ár.
Auglýsing Framsóknar sem er kostuð á samfélagsmiðlum má sjá hér að neðan.