Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar: „Veit vonandi á gott framhald.“

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir jákvætt að aðeins tveir smitaðir hafi komið til landsins. Einn þeirra tveggja sem greindist með kórónu­veiru­smit við skimun við landa­mærin í gær reyndist vera með mót­efni fyrir veirunni. Hann hafði þannig gamalt smit, getur ekki smitað aðra og þarf hvorki að fara í ein­angrun eða sótt­kví.

„Í gær komu tveir smitaðir af kórónaveirunni til landsins. Annar Íslendingur og hinn ósmitandi. Það þýðir að af um 900 farþegum sem komu til landsins var aðeins einn smitandi af veirunni, eða um 0,1% - og enginn smitandi erlendur ferðamaður,“ segir Jóhannes í færslu á Facebook.

Hann segir jákvætt að aðeins einn af 927 sem komu til landsins hafi verið með virkt smit.

„Það er mjög jákvætt og veit vonandi á gott framhald.“