Framkvæmdastjóri Landverndar: Þetta dæmi með álverin er gjörsamlega óþolandi

Þau Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, voru gestir Kristjáns Kristjánssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Þar tókust þau á um álframleiðslu á Íslandi en Sigmundur Davíð sagði í ræðu sinni á landsfundi Miðflokksins í gær að aukin álframleiðsla hér minnki losun gróðurhúsalofttegunda.

„Með því að framleiða ál á Íslandi, erum við að auka framleiðsluna. Þá lækkum við heimsmarkaðsverðið. Við erum að draga úr líkunum á því að ál sé endurunnið því framleiðsla á nýju áli verður svo ódýr. Þá eru miklu minni líkur á að ál sé endurunnið. Ál er frábær málmur inn í hringrásarhagkerfið en við erum ekki að nýta það sem skyldi því það er svo ódýrt að framleiða nýtt ál. Þannig að þetta dæmi með álverin er gjörsamlega óþolandi,“ sagði Auður.

Þessu var Sigmundur Davíð ekki sammála.

„Það er þörf fyrir ál í heiminum. Það er umhverfisvænt. Það er léttur málmur sem hjálpar til við að gera heiminn umhverfisvænni á ýmsan hátt. Ef við lokuðum álverum á Íslandi þá myndi ekki draga úr eftirspurn af því Íslendingar hættu að framleiða ál. Það myndi bara auka svigrúmið til að fjölga álverum í Kína. Það er ákveðin eftirspurn, hún er til staðar og mun bara aukast. Eftirspurn eftir orku hefur aukist áratugum saman, um tvö prósent á ári sirka, og mun gera það áfram. Allir þessir nýju endurnýjanlegu orkugjafar, það hvergi nærri dugar til að halda bara í við aukninguna. Ábyrgð Íslendinga að nýta sýna endurnýjanlegu orku er mikil,“ sagði Sigmundur Davíð í Sprengisandi.