Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Elko, segir fjölda verslana blekkja fólk með tilboðum í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
Í grein sinni kallar Óttar eftir því að tilskipun Evrópusambandsins til að stemma stigu við því sem hann kallar blekkingarleik verði innleidd hér á landi. „Best væri að 30 daga tilskipunin yrði innleidd sem fyrst,“ segir Óttar.
„Úti um allan heim nota verslanir tilboð sem markaðstól, en þau geta hins vegar verið varasöm. Fjöldi verslana hefur fallið í þá gryfju að vera ítrekað og með stuttu millibili með sömu vörur á tilboði og komnar í þá stöðu að viðskiptavinir kaupa bara á tilboðsdögum. Í slíkum tilvikum geta tilboð unnið á móti ímynd verslana og dregið úr trausti. Þarna er tilboðið hætt að vera tilboð, enda sömu vörur jafnvel vikulega á sama tilboði. Svona verðlagning blekkir neytendur,“ segir Óttar.
Hann segir að Evrópusambandið hafi innleitt tilskipun til að bregðast við þessu sem er í sjálfu sér ekki flókin. „Hærra verðið (fyrra verðið í tilboðinu) á að vera lægsta verð vörunnar undangengna 30 daga.“
Óttar segir að þetta þýði að afsláttur reiknast frá lægsta söluverði síðustu 30 daga og kemur í veg fyrir að sama tilboðið sé notað ítrekað um hverja helgi.
„Tilskipunin hefur ekki enn verið innleidd hér og þess má sums staðar sjá merki í framsetningu vöruverðs. Tilboðsmenning og traust til verslana kann því smám saman að bíða skaða án þess að við áttum okkur á því,“ segir Óttar og bætir við að áralöng reynsla hans af smásöluverslun hafi gert honum ljóst að traust viðskiptavina sé eitt það mikilvægasta sem fyrirtæki hafa.
Bendir hann á að ELKO auglýsi tilboð í takti við 30 daga tilskipunina og að ELKO hafi tekið það skref fyrir skemmstu að setja í loftið verðsögu á vef fyrirtækisins. Þar geti viðskiptavinir séð allar verðbreytingar aftur í tímann. Hvetur hann að lokum til þess að 30 daga tilskipunin verði innleidd sem fyrst öllum til hagsbóta.