Fram­kvæmda­stjóri Bónuss með þriggja ára upp­sagnar­frest

Smá­sölu­risinn Hagar þarf að taka á sig um­tals­verðan kostnað vegna starfs­loka Finns Árna­sonar for­stjóra og Guð­mundar Marteins­sonar, fram­kvæmda­stjóra Bónus.

Fjallað er um málið í Markaðnum, við­skipta­riti Frétta­blaðsins, í dag en þar segir að Hagar þurfi að gjald­færa hjá sér yfir 300 milljóna króna ein­skiptis­kostnað vegna starfs­loka þeirra. Herma heimildir Markaðarins að Guð­mundur, sem hefur starfað hjá Bónus í nærri þrjá ára­tugi, sé með þriggja ára upp­sagnar­frest. Finnur Árna­son, sem hefur verið for­stjóri Haga frá árinu 2005, er aftur á móti með eins árs upp­sagnar­frest.

Báðir hafa þeir verið í hópi launa­hæstu stjórn­enda landsins undan­farin ár. Þannig var Finnur með ríf­lega sex milljónir króna á mánuði í laun og hlunnindi á síðasta rekstrar­ári. Sam­kvæmt tekju­blaði Frjálsrar verslunar í fyrra, sem Markaðurinn vitnar til, var Guð­mundur með um 5 milljónir króna á mánuði árið 2018.

Þá segir Markaðurinn að vegna á­kvæða í starfs­samningum þeirra skipti ekki máli hvort þeir hafi látið sjálfir af störfum eða verið sagt upp. Fé­lagið muni þurfa að taka á sig um­tals­verðan kostnað vegna starfs­loka þeirra sem til­kynnt var um í síðustu viku.

Frétt Markaðarins.