Fram­bjóðandi VG vill banna einka­þotur í Reykja­vík: „Einka­þotur eru sið­ferðis­legt gjald­þrot“

Stefán Páls­son, sagn­fræðingur fram­bjóðandi í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík, segir að Reykja­víkur­flug­völl vera mið­stöð innan­lands­flugs á Ís­landi og því eigi að banna einka­þotur á vellinum.

„Þótt ýmsir horfi með á­huga til þeirra fram­kvæmda sem ráðast mætti í á flug­vallar­svæðinu má þó segja að býsna víð­tæk pólitísk sátt ríki um að flug­völlurinn muni ekki víkja fyrr en búið sé að finna innan­lands­fluginu jafn góðan stað eða betri,“ skrifar Stefán í að­sendri grein á Vísi.

„Það er þó ekki þar með sagt að öll flug­starf­semi sé jafn vel­komin eða æski­leg á flug­vellinum. Þann 19. apríl árið 2013 undir­rituðu t.a.m. þeir Jón Gnarr borgar­stjóri og Ögmundur Jónas­son innan­ríkis­ráð­herra sam­komu­lag um ýmis at­riði tengd rekstri Reykja­víkur­flug­vallar. Í því var á­kvæði þess efnis að allri um­ferð her­flug­véla og flugs í þágu hernaðar­legrar starf­semi yrði hætt á flug­vellinum, með þeirri einu undan­tekningu þegar nota þyrfti hann sem vara­flug­völl eða í björgunar­störfum.“

Hann bendir á að á sama hátt og borg og ríki út­hýstu her­flug­vélunum af Reykja­víkur­flug­velli fyrir tæpum ára­tug í sam­ræmi við friðar­stefnu borgarinnar, væri sjálf­sagt að huga að því nú að losna við einka­þoturnar af vellinum í anda lofts­lags­mark­miða Reykja­víkur.

„Á degi hverjum má sjá fjölda þessara farar­tækja í grennd við gamla Loft­leiða­hótelið. Þessum vélum fylgir bensín­stybba sem ná­grannar kvarta yfir og hljóð­mengun, því öfugt við innan­lands­flugið þá lenda einka­þoturnar á öllum tímum sólar­hringsins. Fram hefur komið að stöðu­gjöldin sem eig­endur þeirra greiði á flug­vellinum séu á pari við það sem kostar að leggja fólks­bíl mið­svæðis í borginni.“

„Megin­rök­semdin fyrir því að stugga einka­flug­vélunum til Kefla­víkur­flug­vallar (ef ekki lengra) er þó um­hverfis­leg. Vart er hægt að hugsa sér meira mengandi sam­göngu­máta en einka­þotur auð­kýfinga. Kol­efnis­fót­spor slíkra ferða­laga er svimandi og sið­leysið þeim mun meira í ljósi þess að í lang­flestum til­fellum er til­gangurinn sá eini að stytta ör­lítið ferða­tíma milljóna­mæringa og tryggja að þeir þurfi ekki að um­gangast venju­legt fólk. Einka­þotur eru sið­ferðis­legt gjald­þrot.“

„Á tímum bar­áttu gegn ham­fara­hlýnun eiga stjórn­völd ekki að greiða leið þeirra sem kjósa að níðast á jörðinni á ferðum sínum um hana. Ef flutningur einka­þotu­flugsins frá Reykja­vík verður til að fækka þessum ferðum eitt­hvað, væri góður sigur unnin. Hinum ríku er ekkert of gott að taka flug­rútuna í bæinn,“ skrifar Stefán að lokum.