„Frænka Davíðs aug­lýsir störf en bara fyrir les­endur Morgun­blaðsins“

Föstum skotum er skotið að Hrafn­hildi Ástu Þor­valds­dóttur, fram­kvæmda­stjóra LÍN, í pistli á vef Kvenna­blaðsins. Pistillinn ber yfir­skriftina: Frænka Davíðs aug­lýsir störf en bara fyrir les­endur Morgun­blaðsins.

Pistilinn er merktur ritstjórn Kvennablaðsins og því ekki ljóst hver heldur á penna, en þess má geta að Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ritstjóri vefmiðilsins.

Til­efni pistilsins er heil­síðu­aug­lýsing sem birtist í Morgun­blaðinu um helgina en þar voru aug­lýst fjögur laus störf hjá sjóðnum. Það vakti at­hygli pistlahöfundar að LÍN hafi ekki aug­lýst í öðrum fjöl­miðlum landsins og er bent á að Hrafn­hildur Ásta sé ná­frænka Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morgun­blaðsins.

„Mogginn berst í bökkum svo fram­lag LÍN til aug­lýsinga­tekna Morgun­blaðsins hlýtur að hjálpa tals­vert til. Fram­kvæmda­stjóri LÍN, Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir, er ná­frænka rit­stjóra Morgun­blaðsins svo að það er virki­lega fal­leg frænd­semi þarna á ferðinni og á­kveðið list­fengi í því hvernig hið opin­bera ver með öllum til­tækum ráðum Mál­gagnið,“ segir í pistlinum.

Höfundur vandar les­endum Morgun­blaðsins svo ekki beint kveðjurnar.

„Það sætir samt furðu að LÍN skuli ein­göngu leita eftir starfs­kröftum úr röðum les­enda Morgun­blaðsins sem eru flestir komnir af fótum fram, geta vart ritað nafnið sitt lengur svo það skiljist og ekki lík­legir að endast við þung­bæra skrif­stofu­vinnu.“