Frændi Bjarna Ben segir af og frá að búið sé að á­kveða kaup­endur Ís­lands­banka

Bene­dikt Jóhannes­son, fyrr­verandi fjár­mála­ráð­herra og fyrr­verandi for­maður Við­reisnar, hefur enga trú á því að búið sé að á­kveða hverjum hlutur ríkisins í Ís­lands­banka verður seldur.

Bene­dikt var í við­tali við Harma­gedd­on á X-inu 977 í morgun þar sem hann ræddi yfir­vofandi sölu á hlut ríkisins í bankanum.

„Ég er viss um að svo er ekki. Það er auð­velt að skapa tor­tyggni og eins og ég sagði áðan þá skil ég hana vel. Það er ekki þannig að það sé ein­hver S-hópur sem bíður og ég held að hann verði ekki seldur aftur til Björg­ólfs­feðga,“ sagði Bene­dikt sem er frændi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, en flest bendir til þess að Bjarni muni leiða söluna á bankanum.

Í við­talinu sagðist Bene­dikt sjálfur vera þeirrar skoðunar að réttast væri að selja hlut ríkisins í bankanum. „Þegar ég var fjár­mála­ráð­herra var það hluti af eig­enda­stefnu ríkisins að selja bankann og það hefur ekkert breyst síðan. Það er líka stefna nú­verandi stjórnar.“

Bene­dikt nýtti tæki­færið í við­talinu og hnýtti í frænda sinn og sagði að gallinn við fyrir­hugaða sölu nú sé sá hvað ríkis­reksturinn er ráða­laus. „Það hefur vakið litla at­hygli en það stendur til að skuld­setja þjóðina um þúsund milljarða á fimm árum,“ segir Bene­dikt sem óttast að sala á fjórðungs­hlut, fyrir 30-40 milljarða króna, verði dropi í hafið í því eyðslu­hafi sem blasir við.

„Hluti af ótta mínum er hvað mér finnst lítil á­byrgð í ríkis­fjár­málunum og lítil fram­sýni.“