Frægasti kópur landsins er allur

Sel­skópurinn Tóbías Eró, einn frægasti sel­skópur landsins sem var í fóstri á Súða­vík, er allur en hann lést í nótt úr lungna­bólgu. Hjónin Ás­geir Hólm Agnars­son og Elsa Guð­björg Borgars­dóttir greina frá þessu á Insta­gram.

Hjónin greindu frá því í síðustu viku að þau hefðu fundið kópinn yfir­gefinn á Hest­firði í Ísa­fjarðar­djúpi. Sögðu þau við Ríkis­út­varpið í síðustu viku að kópurinn væri orðinn eins og einn af fjöl­skyldunni.

„Mér þykir það rosa­lega leitt, en þetta er búið að vera erfitt síðustu daga,“ segir hún. Allt hafi verið gert til að að­stoða honum en að lokum hafi sýking dregið hann til dauða.

„Þetta er bara búið að vera hrika­lega erfitt. Mjög at­hyglis­vert, talið um að dýrin séu skyn­laus og svona eða hin­segin en ég á eftir að líta selinn allt allt öðrum augum en ég gerði fyrir nokkrum vikum síðan.“