Jólagjafirnar í ár verða föt og bækur miðað við nýja greiningu sem byggir á gögnum könnunarfyrirtækjanna Zenter og MMR og svo gögnum Meniga sem rekur sérstaka markaðsvakt. Verslanagreining greindi úr upplýsingunum.
Spurt var: „Hvað langar þig helst í jólagjöf í ár?" Rúmlega 63 prósent nefndi fatnað og tæplega 58 prósent bækur. Svarendur virðast hafa trú á endurreisn hótel og upplilfunarbransans þar sem rúmlega 39% segjast vilja hótelgistingu í jólagjöf. Þá vill rúmlega þriðjungur fá miða í leikhús/tónleika eða bíó og næstum jafn stór hluti vill fá spil í jólagjöf.
Í úrtakinu voru 2100 einstaklingar, handahófskennt úrtak úr Þjóðskrá, 18 ára og eldri. Svarhlutfall var 52 prósent.
Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar greiningar, sem byggir á gögnum frá Zenter, MMR og Meniga. Kjartan Sigurðsson hjá Verslanagreiningu segir í viðtali í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld