Alfa Jóhannsdóttir, forvarnarfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifar heldur betur áhugaverða grein á Vísi í dag um ofbeldi og börn.
Alfa spyr þar foreldra: „Hvað myndirðu gera ef barnið þitt kæmi með sýnilega áverka?“
„Sem betur fer reyna langflestir foreldrar allt sem þau geta til að vernda og verja börnin sín fyrir því sem veldur þeim skaða. Börnum af minni kynslóð var til dæmis kennt að varast ókunnuga á götum úti, fara aldrei upp í bíl með ókunnugum og svo auðvitað var stúlkum kennt að passa sig og setja sig ekki í aðstæður sem gætu leitt af sér ofbeldi. Það heppnaðist ekki alltaf, en það voru verkfærin sem foreldrar okkar höfðu. Óþokkar í myrkum húsasundum voru óöryggið og óttinn sem bar að varast,“ skrifar Alfa.
„Stafræn umbreyting hefur breytt þessu umhverfi algjörlega og óöryggið sem við fundum fyrir gagnvart ókunnugum í skuggunum er orðið ákveðið öryggi því þar eru skuggarnir sem við sjáum. Skuggar stafræna umhverfisins eru því miður oft á tíðum ósýnilegir okkur, hafa þann möguleika að dulbúa sig sem hver og hvað sem er og skapa þannig hættu fyrir börnin okkar sem við höfum ekki enn verkfærin til að takast á við.“
„Eftir því sem netið breiðist meira út og angar þess teygja sig inn í fleiri þætti lífs okkar byrja fleiri börn, og sífellt yngri börn, að alast upp í stafrænum heimi. Börn eyða meiri tíma á netinu en nokkru sinni fyrr. Að alast upp á netinu býður upp á endalaus tækifæri og í gegnum tölvur, sjónvörp og önnur snjalltæki opnast stór og mikill heimur upplýsinga fyrir börn, sem getur eflt þau og styrkt þau í þeirra verkefnum,“ skrifar Alfa.
Hún segir að þegar netið er notað á réttan hátt hefur það möguleika á að víkka sjóndeildarhring, víðsýni og þekkingu okkar. En öllum þessum tækifærum fylgir líka áhætta.
„Eftir því sem stafræn reynsla barna eykst og stafrænt umhverfi þeirra stækkar, fjölgar einnig ógnunum og hættunum sem fylgja og geta falið í sér ofbeldi og áreitni ásamt því að börn verða útsettari fyrir skaðlegu efni. Ein stærsta ógnin við börn á netinu er hinsvegar stafrænt ofbeldi og brot á kynferðislegri friðhelgi þeirra.“
„Afþví að stafrænt ofbeldi er ekki alltaf sýnilegt, bera þolendur þess ekki alltaf sýnilega áverka. Við þekkjum ekki tilurð, birtingarmyndir og afleiðingar þess og eigum þess vegna oft erfitt með að bregðast við því eða koma í veg fyrir það. Oft á tíðum átta börnin sig ekki á því að verið sé að brjóta á þeim og þess vegna er svo mikilvægt að við kennum þeim og lærum sjálf.“
„Börn sem þekkja réttindi sín og vita þegar brotið er á þeim láta frekar vita og ef við sjálf erum upplýst getum við betur varið þau og brugðist við. Það hefur aldrei verið auðveldara fyrir kynferðisafbrotamenn að nálgast hugsanlega þolendur sína. Í hinum stafræna heimi getur hver sem er, hvaðan sem er búið til aðgang til að nálgast börn í gegnum samfélagsmiðla og/eða leikjatölvur. Það hefur einnig auðveldað þeim að tæla börn til samskipta,“ skrifar Alfa.
„Tæling er þegar fullorðinn einstaklingur reynir að byggja upp samband við barn svo að hann geti beitt það ofbeldi. Ofbeldið er ekki alltaf líkamlegt, það getur átt sér stað í stafrænum samskiptum við barnið. Þau sem beita tælingu reyna þá oft að mynda tengsl við barnið á samfélagsmiðlum, spjalla jafnvel við barnið í gegnum tölvuleiki sem eru spilaðir á netinu eða nota hvern þann vettvang sem er ætlaður fyrir samskipti á netinu. Mörg nota ekki sitt raunverulega nafn eða eigin mynd og þykjast jafnvel sjálf vera börn. Önnur nota eigin upplýsingar, og þá sérstaklega ef þau eru sjálf ung.“
„Samskiptin hefjast oft á því að þau sem beita tælingu látast hafa sömu áhugamál og barnið og þykjast jafnvel þekkja sömu einstaklingana. Þetta eru oft upplýsingar sem börnin hafa gefið sjálf upp án þess að átta sig á því, hvort sem það er í gegnum samfélagsmiðla eða leiki. Yfirleitt þróast svona samskipti fljótt yfir í einkasamtöl þar sem sá sem beitir tælingunni reynir að hefja kynferðislegt samtal, og óska eftir til dæmis nektarmyndum,“ skrifar Alfa.
Hægt er að lesa grein Ölfu í heild sinni hér.