Heiðar Guðjónsson, forstjóri Stöðvar 2 og Vodafone, fer hörðum orðum um Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, sem og aðra ráðherra Sjálfstæðisflokksins í pistli sem birtist á Vísi.
Að mati Heiðars stuðluðu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins áður að samkeppni, en hann segir að þeir virðist nú miklu frekar vilja auka umfang hins opinbera.
„Fyrirtækið sem ég vinn hjá er afsprengi aukins frjálsræðis og markaðsskipulags. Fyrst var lögum breytt og opnað á samkeppni á fjölmiðlamarkaði sem ól af sér Stöð 2 og Bylgjuna árið 1986. Síðan var fjarskiptalögum breytt 1998 og Tal var stofnað sem og Íslandssími sem eru grunnurinn að Vodafone í dag. Landssíminn var síðan einkavæddur árið 2005. Þessar breytingar gjörbyltu neytendamarkaði til hins betra. Fjölbreytni jókst, þjónusta batnaði og verð lækkuðu gríðarlega. Frumkvæðið að lagabreytingunum var allt hjá Sjálfstæðisflokknum.“
Þetta skrifar heiðar og bætir við: „Í dag er ástandið þveröfugt. Enn eru það Sjálfstæðismenn sem veita málunum forstöðu en nú er verið að auka umfang hins opinbera.“
Þá færir hann rök fyrir því hvers vegna ríkisreknir fjölmiðlar séu liðin tíð.
„RÚV fær síaukin framlög þrátt fyrir að tilvist ríkisútvarps sé alger tímaskekkja. Aldrei hafa fleiri útvarps- og sjónvarpsstöðvar verið í rekstri og dreifing á slíku efni er nánast orðin almenn, enda er hægt að opna fjölmiðil á netinu með engri fyrirhöfn. Öryggishlutverk ríkisútvarps er ekkert enda hafa snjallsímar löngu tekið það yfir. Ríkisfréttastofa minnir á liðna tíma og fyrirkomulag ráðstjórnarríkja. Að ríkið standi í samkeppni á auglýsingamarkaði hefur alltaf verið fráleitt.“
Heiðar víkur þá máli sínu að ljósleiðurum og interneti, og vill meina að ísland sé einnig langt eftir á í þeim málum.
„Það er alger tímaskekkja og sóun að draga ljós inná hvert heimili þegar 5G farsímatækni er komin í gagnið sem býður upp á 2Gb tengingu í gegnum loftið (6G enn meiri hraða) án alls jarðrasks á meðan Ljósleiðarinn býður í dag 1Gb. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrir þessari sóun og aðför að einkaaðilum og samkeppni.
Síðan tekur steininn úr þegar umræða hefst hjá Sjálfstæðismönnum um hvort stofna eigi öflugt fjarskiptafélag í eigu ríkisins með sameiningu Orkufjarskipta, Farice og Neyðarlínunnar.
Á tyllidögum er talað um sjálfbærni og minnkun á sóun en verkin sem hér eru nefnd eru dæmi um hið gagnstæða. Hagur almennings mun versna hratt við þessa þróun.“