Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir að Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hafi sent sér bréf aðeins nokkrum mínútum eftir að hún gagnrýndi hann í beinni útsendingu í Kryddsíldinni á Stöð 2 á Gamlársdag.
Í þættinum vék hún að vali Markaðarins á honum sem viðskiptamaður ársins og ummælum sem hann lét falla í viðtali við blaðið. Þórhildur Sunna sagði í þættinum að Bogi minnti sig á Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins: „Honum líkar ekki við samkeppni og átta flokkar á Íslandi eru einfaldlega samkeppni um atkvæði kjósenda. Það felst fjölbreytileiki í því og það er mikilvægt að hann fái að koma fram. Það hefur of lengi verið allt of einsleitur hópur sem stjórnar þessu landi sem telur sig yfir lög og reglur hafinn. Það er kominn tími til að breyta til, það er algjörlega á hreinu,“ sagði hún.
Í grein sem hún skrifar á Vísi í dag segir hún að Bogi hafi sent sér athugasemd aðeins nokkrum mínútum eftir að hún lét orðin falla þar sem hann hafnaði því að vera á móti samkeppni og bað hana um að leiðrétta orð sín. Nokkrum dögum síðar skrifaði hann henni annað bréf þar sem hann fór fram á það sama.
„Í fyrstu hafði ég ekki hugsað mér að bregðast sérstaklega við bréfi Boga. Ummæli mín um að svar Bjarna „minnti mig svolítið á orð“ viðskiptamanns ársins þóttu mér einfaldlega ekki gefa tilefni til þess. Nafnbót Boga hafði sætt beinskeyttri gagnrýni og háðsglósum í aðdraganda Kryddsíldar og hefur forstjórinn því þurft að senda ófáa pósta um áramótin ef hugrenningatengslin mín kölluðu á bréfaskriftir,“ segir Þórhildur.
Fer hún svo yfir það hvers vegna hún líkir Boga við Bjarna. Bjarni hafi sagt klukkutíma fyrir atkvæðagreiðslu um ríkisábyrgð til Icelandair að ástæðan fyrir því væri mat forsvarsmanna Icelandair. „Ekki að það væri hagur almennings, ferðaþjónustunnar eða ríkissjóðs að aðstoða Icelandair umfram önnur fyrirtæki og umfram þá milljarða sem félagið hafði áður fengið í gegnum aðrar aðgerðir, heldur væri það einfaldlega mat Boga og félaga.“
Þá bætir hún við: „Krafa Boga um margra milljarða ríkisaðstoð og barátta Bjarna fyrir samþykkt hennar miðaði því beinlínis að því að skaða samkeppnina sem Bogi og Bjarni segjast vera svo annt um. Eina stundina fagna þeir samkeppni opinberlega - en þá næstu krefjast þeir þess að ríkið leggi stein í götu hennar.“