For­stjóri Land­spítalans blandar sér í mál Skúla læknis og sendir fjöl­miðlum pillu

Skúli Tómas Gunn­laugs­son læknir, sem sætir lög­reglu­rann­sókn vegna gruns um að valda dauða sex sjúk­linga sinna á Heil­brigðis­stofnun Suður­nesja árin 2018-2020 segist vera borinn röngum sökum.

Þetta kemur fram í færslu Skúla á Face­book en fjöl­margir úr lækna­sam­fé­laginu standa með Skúla.

Skúli er sagður hafa valdið dauða sjúk­linga með til­efnis­lausum lífs­loka­með­ferðum. Hann neitar því.

Meðal þeirra sem styðja Skúla er Páll Matthías­son, for­stjóri Land­spítalans.

„Gangi þér sem allra best Skúli. Sú ein­hliða um­fjöllun sem verið hefur í fjöl­miðlum um þetta mál er því frétta­fólki sem á bak við stendur til skammar – og Blaða­manna­fé­laginu,“ skrifar Páll.

Þá segir Páll einnig slæmt að Skúli hafi verið nafn­greindur í fjöl­miðlum. „Blasir það ekki við að í svona við­kvæmum málum þá geta þeir heil­brigðis­starfs­menn sem undir á­sökun sitja ekki tjáð sig? Væri þá ekki eðli­legra að bíða með um­fjöllun -eða í það minnsta ekki nafn­greina fólk? Eða er það af­lagt að fólk sé sak­laust uns sekt er sönnuð? – Þessi heygafla­stemning á torgum ætti að til­heyra myrkri forn­öld!“

Í færslunni segir Skúli ó­bæri­legt að sitja undir þungum sökum.

„Um langt skeið hef ég rang­lega verið borinn afar þungum sökum um til­efnis­lausar lífs­loka­með­ferðir meðan ég starfaði á Heil­brigðis­stofnun Suður­nesja. Lögum sam­kvæmt hef ég ekki getað borið hönd fyrir höfuð mér vegna þagnar­skyldu. Um­fjöllunin hefur því verið al­gjör­lega ein­hliða, afar villandi og hrein­lega röng.“ segir hann.

Skúli fagnar því að rann­sókninni sé að ljúka og að bráð­lega verið niður­stöður hennar opin­berar og segir að bráð­lega muni málið fara til héraðs­sak­sóknara þar sem á­kvörðun verður tekin um hvort hann verði á­kærður.

„Þeir sem setið hafa undir ó­sann­gjarnri, ein­hliða og villandi fjöl­miðla­um­fjöllun vita hversu erfið raun það er. Það á ekki síst við um heil­brigðis­starfs­fólk, sem er í mjög veikri stöðu ef bornar eru á það sakir. Að geta ekki svarað fyrir rangindi og þurfa að sitja undir ein­hliða mál­flutningi er oft á tíðum ó­bæri­legt og ég full­yrði að fátt ógnar starfs­öryggi þeirra meira en þetta. Öryggi starfs­manna og sjúk­linga fer nefni­lega saman.“