For­stjóri ál­versins vill leik­skóla opna allan sólar­hringinn: „Þeir eru bara miðaðir við skrif­stofu­tíma“

Rann­veig Rist for­stjóri ál­versins í Straums­vík segir í sam­tali við RÚV að þótt ál­verið sé frá­bær vinnu­staður fyrir konur þá vantar um­sóknir frá þeim en hindranirnar eru sér­stak­lega miklar varðandi vakta­vinnu.

„Ég bara spyr hvers vegna eru leik­skólar ekki opnir allan sólar­hringinn. Þeir eru bara miðaðir við skrif­stofu­tíma,“ segir Rann­veig og bætir við að það sé kannski ein skýring þess að Land­spítalanum gangi illa að ráða starfs­fólk.

Þetta kom fram á ráð­stefnu Fé­lags kvenna í at­vinnu­lífinu þar sem viður­kenning jafn­réttis­vogarinnar voru af­hentar.

Rann­veig vill jafn­framt að kynja­kvóti í fram­kvæmda­stjórnir fyrir­tækja verði lög­festur líkt og erum stjórnir þeirra.

„Mér fyndist til þess að koma jafn­réttinu betur á þá þyrftum við að hafa kynja­hlut­föllin jöfn í fram­kvæmda­stjórnum. Og það stafar af því að fram­kvæmda­stjórnir eru þeir aðilar sem sjá um ráðningar starfs­fólks inn í fyrir­tækin og sjá um fram­göngu starfs­manna en ekki stjórnir,“ segir Rann­veig í sam­tali við RÚV.