Heildarfjárheimild til Embættis forseta Íslands á næsta ári er áætluð 345 milljónir króna og lækkar hún um 25,9 milljónir króna frá gildandi fjárlögum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu sem var kynnt í morgun.
Fjárheimild málaflokksins lækkar um 32 milljónir króna vegna tímabundinna fjárfestingar- og viðhaldsverkefna sem nú er að mestu lokið. Þá verður fjárheimild aukin tímabundið í eitt ár um 12,5 milljónir króna vegna forsetaritaraskipta, að því er fram kemur í frumvarpinu.
Örnólfur Thorsson var skipaður forsetaritari árið 2005 en hann verður 67 ára næsta sumar.