Forseti viðskiptadeildar á bifröst: hægt að læra að verða leiðtogi

Sigurður Ragnarsson, forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, er í afar fróðlegu viðtali í þætti Jóns G. þar sem þeir ræða um stjórnun og hvort hægt sé að læra að verða leiðtogi; hvort menn séu ekki frekar fæddir leiðtogar og stjórnendur. „Já, það er hægt,“ svarar Sigurður að bragði. „Ég hef séð fólk breytast og blómstra fyrir framan mig sem stjórnendur.“

Háskólinn á Bifröst hefur sérhæft sig í fjarnámi og koma nemendur hvaðanæva að af öllu landinu sem og erlendis frá. Námsbrautir eru margar. Ein mjög athyglisverð og vinsæl er meistaranámið í forystu og stjórnun. Þar er meðal annars lögð áhersla á mannauðs- og verkefnastjórnun sem og þjónandi forystu.

Sigurður segir að forsenda þess að fólk geti orðið stjórnendur sé viljinn til að stjórna og leiða. „Hingað koma nemendur í meistaranámið sem vilja stjórna og sækja í þær verkfærakistur sem við höfum upp á að bjóða til að mennta sig betur í faginu og takast á við stjórnun úti í atvinnulífinu eftir það,“ segir Sigurður.