Forseti Íslands blandar sér í milli­ríkja­deilu um súkku­laði­hjúpaðan lakkrís

Grín­istinn og leikarinn Vil­helm Neto benti á því að danski lakkrís fram­leiðandinn Bulow hafi verið að eigna sér það að hafa fundið upp á blanda saman súkku­laði og lakkrís.

„Ég er all in í að starta drama með Dan­mörk. Bulow að eigna sér lakkrís og súkku­laði combóið er svo ó­trú­legt,“ skrifar Vil­helm og birtir skjá­skot af heima­síðu Bulow.

Stefán Ólafs­son á­kveður að merkja lakkrís­fram­leiðandann og segja „þetta er ekki ykkar upp­finning“ og merkir einnig for­seta Ís­lands og segir „þetta megi ekki standa“

Lakkrís­fram­leiðandinn svarar og segir að Stefán hafi rétt fyrir sér og lakkrís og súkku­laði sé gömul ís­lensk hefð. Unnið væri að því að upp­færa vef­síðu fyrir­tækisins.

Guðni Th. Jóhannes­son á­kvað að blanda sér síðan í deiluna og segir: „Súkku­laði­húðaður lakkrís er jafn ís­lenskur og jöklar, álfar, eld­fjöll og fossar. Ekkert danskt þar með fullri virðingu. Prófið frekar að setja súkku­laði og smur­brauðið ykkar,“ skrifar Guðni meðal annars.

Fjöl­margir hafa deilt tísti Guðni og fær hann mikið lof fyrir. Hans segir meðal annars: „Þetta er okkar þorska­stríð“