„Ég fordæmi þessa innrás heilshugar og hvet íslensk stjórnvöld til að vísa sendiherra Rússlands úr landi og slíta á stjórnmálasamband og öll viðskipti við Rússland og Hvíta-Rússland.“
Þetta segir Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, í aðsendri grein á vef Kjarnans.
Vill hún að Mikhaíl V. Noskov verði þannig vísað úr landi. Hvetur hún aðrar þjóðir til að vísa öðrum sendiherrum Rússa úr landi.
Alexandra segir einnig að styrkur Rússa sé fólginn í því að Evrópuþjóðir séu háðar gasi. „Fyrsta skrefið í því að losa okkur út úr því er að búa til valkost við þetta gas, og auðvitað væri óskandi að það gæti verið vind-, sólar- og jarðvarmaorka, eða ný tækni svo sem samrunaorka,“ segir hún.
„En raunhæfasti kosturinn er því miður sennilega að byggja upp kjarnorkuver aftur. Það er eina tæknin sem er tilbúin og nægilega þróuð til að byggja upp á þeim skala sem þarf til að losa Evrópu undan gasfíkninni á milli-stuttum tíma.“