Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, lét tíst um íslensku kvikmyndina Leynilögguna hverfa eftir að áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjarnan Edda Falak spurði hvort innleggið væri brandari.
Forsetinn var mjög ánægð með myndina ef marka má tístið í gærkvöldi.
Ekki liggur fyrir hvað lá að baki spurningu Eddu en líklegast er um að ræða gagnrýni á einn leikara eða aðstandanda myndarinnar sem mun vera meintur gerandi. Tístið hvarf stuttu síðar.
Margrét Gauja Magnúsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi, lét einnig í ljós ánægju sína með myndina:
Leynilöggan kom virkilega á óvart. Var óvænt boðið og shit hvað ég hló, mikið og oft, upphátt.
— Margrét Gauja (@MargretGauja) October 24, 2021
Vel gert @hanneshalldors.
Virkilega vel gert!
Hannes Halldórsson, leikstjóri myndarinnar, þakka fyrir sig.
Hún fékk einnig viðbrögð:
Já gott að einhver njóta þess að sjá gerendur fá sífellt stærri platforms!
— AlenuYfirHán 🏳️🌈🏴☠️🇮🇹 (@AlenuHan) October 25, 2021
Í allri einlægni sérð þú ekkert að þessu?
Æjji nei 💔
— Hulda Hrund (@hulda_hrund) October 25, 2021