Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata og forseti borgarstjórnar, lætur Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, fá það óþvegið í færslu á Facebook síðu sinni nú undir kvöld. Henni þykir ótækt að skylda fólk í bólusetningar.
Færsla Alexöndru hefst svona: „Eins og ég styð bólusetningar 100%, eins og mér finnst það aulalegt og sjálfselskt að fara ekki í bólusetningu án þess að hafa fyrir því góða læknisfræðilega ástæðu, þá get ég aldrei nokkurn tíma samþykkt að ríkisvaldið neyði fólk til þess að undirgangast læknisfræðilegt inngrip í líkama þess sem það vill ekki. Ég sé ekki hvernig fólk sem virðir frelsi og lýðræði getur einu sinni íhugað það.“
Því næst baunar hún á Kára Stefánsson, sem missti nýverið eiginkonu sína, fyrir að tala fyrir slíku sjónarmiði: „Fullkomlega út í hött að málsmetandi maður eins og Kári Stefánsson, sem mörg hlusta á, sé að ljá máls á því.“
Færsla Alexöndru hefur nú þegar vakið hörð viðbrögð og ýmis skoðanaskipti átt sér stað. Þar segir Þórður nokkur: „Kannski ekki fylgst nógu vel með. En hvaðan kemur þetta "að ríkisvaldið neyði fólk til þess að undirgangast læknisfræðilegt inngrip í líkama þess sem það vill ekki"? Hefur Kári s.s. lagt það til að fólk verði nauðungarbólusett á vegum ríkisins?“
Alexandra svarar honum og segir: „Já, var að hvetja til þess í viðtali í fréttum.“
Þá lætur Þór Saari slíka umræðu ekki framhjá sér fara frekar en fyrri daginn og blandar sér í umræðuna: „Hef nú ekki séð að neinn mæli með því að fólk verði neytt í bólusetningu en ef val samfélagsins (sem það gerir þessa dagana) stendur milli þess að koma manni að í hjartaaðgerð eða hafa einhvern á gjörgæslu sem er með ástæðulausa bólusetningar andúð og tekur hugsanlega upp plássið, þá þarf auðvitað að skoða forgangsröðunina.“
Stefán nokkur kveðst ósammála Alexöndru: „Ég er þessu ekki sammála. Þegar ég ferðaðist nýverið til fjarlægs heimshluta var mér gert að láta bólusetja mig. Þessi skylda ferðalanga er sjálfsagt til að ég beri ekki heim einhverja óværu sem íslenskt samfélag hefur ekki mótefni fyrir eða myndi gera mig fárveikan. Ég lít á þessa kröfu sem eðlilega þar sem hún snertir almannaheill, eins og Covid bólusetning gerir. Sú röksemdafærsla að sjá þetta sem frelsissviptingu eða að fótum troða lýðræði finnst mér einfaldlega ekki ganga upp.“
Alexandra svarar Stefáni og segir: „Mér finnst það aðeins annað að gera það að skilyrði fyrir ferðalögum, bæði byggir það á kröfum móttökulandsins, og þú getur valið að ferðast ekki. Það er annað en að beinlínis neyða fólk til þess.“
Ljóst er að umræðan um skyldubólusetningar er hvergi nærri horfin af yfirborðinu.