For­seti borgar­stjórnar biður Hall af­sökunar

Hallur Magnús­son, fyrr­verandi vara­for­borgar­full­trúi og fyrr­verandi em­bættis­maður hjá ríki og sveitar­fé­lagi, skrifaði grein í Morgun­blaðið í dag um kynningar­fund Reykja­víkur­borgar sem hann sótti á dögunum líkt og fjallað var um á Hring­braut fyrr í dag.

Þar voru kynntar fyrir­hugaðar breytingar í Háa­leitis- og Bú­staða­hverfi og segist Hall­dór ekki hafa upp­lifað við­líka stemningu áður.

Brá við lesturinn

Í grein sinni sagði Hall­dór að for­maður borgar­ráðs hefði varið „á dóna­legan hátt vafa­samar fyrir­liggjandi til­lögur gegn and­mælum þeirra eldri borgara hverfisins sem dirfðust að tjá sig.“ For­maður borgar­ráðs er Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir úr Við­reisn. Í færslu á Face­book segir Þór­dís Lóa að henni hafi brugðið við lestur Morgun­blaðsins með morgun­kaffinu.

„Stundum er pólitíkin skrítin.

Í morgun sundlaðist mér á morgun­kaffinu þegar ég las í Morgun­blaðinu að ég, sem for­maður borgar­ráðs, hefði verið dóna­leg við eldra fólk á fundi um hverfa­skipu­lag í Réttar­holts­skóla í síðustu viku. Ég var ekki á þeim fundi. Ég var í kvöld­mat með gömlum mennta­skóla­vinum og því víðs­fjarri þessum fundi.“

Í um­mælum við færslu hennar biðst Hallur af­sökunar á því að fara manna­villt. „Takk fyrir þetta Þór­dís Lóa. Biðst aftur inni­legrar af­sökunar. Ég átti við foseta borgar­stjórnar sem var á fundinum - en ekki þig. Gamli blaða­maðurinn klikkaði á að tví­tékka titlana áður en hann sendi frá sér skrifin.“

Alexandra Bríem, for­­seti borgar­­stjórnar og borgar­full­trúi Pírata, skrifar einnig um­­­mæli við færslu Þór­­dísar Lóu. „Sæll Hallur, mér finnst leitt að þú hafir upp­­lifað mig dóna­­lega þarna, og sumum kann að finnast að ég hefði átt að halda mig til hlés“, skrifar Alexandra.

„Að mínu viti var ég á­kveðin, en ekki dóna­leg. En það getur vissu­lega verið vand­með­farið og mér finnst það raun­veru­lega leitt hafi ég farið vit­lausu megin við þá línu,“ skrifar hún enn fremur og þakkar Hallur henni fyrir inn­leggið.