For­seta­fram­bjóðandi vill kæra: „Fyrir mér lítur þetta út eins og valda­rán“

Axel Pétur Axels­son, sjálf­titlaður þjóð­fé­lags­verk­fræðingur og fram­bjóðandi til em­bættis for­seta Ís­lands, segist hafa lagt fram kæru til Hæsta­réttar vegna for­seta­kosninganna 2020. Þetta kemur fram í til­kynningu sem hann hefur sent frá sér. Vill hann meðal annars að lögð verði fram sönnun fyrir til­vist CO­VID-19 og að rann­sókn fari fram á „á­standi lýð­veldis Ís­lands.“

Axel Pétur út­listar ekki hvers vegna hann sendi kæruna til Hæsta­réttar, en eins og segir á heima­síðu dóm­stóla­sýslunnar fer Hæsti­réttur með æðsta dóms­valdið og er einungis hægt að á­frýja málum þangað.

Segir RÚV bannfæra skoðanir

Í erindi sínu segir Axel Pétur meðal annars: „Í að­draganda for­seta­kosninga 2020 sinnti RÚV ekki lýð­ræðis­legum skyldum sínum með tóm­læti og full­kominni bann­færing um skoðanir mínar, stefnur, upp­lýsingar og á­lyktanir sem eru grunnur að for­seta­fram­boði mínu.“

Axel segir RÚV hafa brotið gegn reglum í samningi mennta- og menningar­mála­ráð­herra og RÚV ohf. Þar segi að RÚV eigi að gefa lands­mönnum upp­lýsingar án þess að draga taum hags­muna­hópa eða á­kveðinna sjónar­miða og með því að gefa fólki kost á að móta sínar skoðanir og draga á­lyktanir.

„RÚV bann­færir miskunnar­laust skoðanir sem ekki henta þeirra sér­trúar­söfnuði,“ segir meðal annars. Gerir hann þær kröfur að „fyrsta stig kosninga sem er söfnun með­mæla­lista verði dæmt ó­gilt og ferlið endur­tekið þar sem allir fram­bjóð­endur fá að kynna sig, skoðanir sínar og veita upp­lýsingar um fram­boð sitt.“

„Mútur til að þagga framboð“

Axel gagn­rýnir einnig einka­rekna fjöl­miðla og segir þá hafa stundað á­róður sem stór­skaðaði fram­boð hans og raunar lýð­ræðis­lega fram­kvæmd kosninganna. „Með því að reka á­róður um að ekki væri væn­legt að fara í lýð­ræðis­legar kosningar vegna kostnaður hafði nei­kvæð á­hrif á marga kjós­endur og fram­boð mitt.“ Segir hann að væntan­legir styrkir til einka­rekinna fjöl­miðla, vegna þungs rekstrar þeirra, sé ekkert annað en „mútur til að að­stoða við þöggun fram­boða“ í væntan­legum kosningum.

Loks vill hann kæra raf­ræna söfnun með­mælenda og segist hann hafa gert á­ætlun um að safna undir­skriftum með hefð­bundnum hætti. Það hafi ekki verið hægt vegna CO­VID-19 far­aldursins. Því hafi hann ætlað að nýta sér raf­ræna söfnun með­mælenda en það reynst erfitt fyrir stuðnings­aðila hans sem margir hverjir eru er­lendis. Vill hann að fallið verði frá öllum kröfum um undir­skriftir með­mælenda í komandi kosningum.

Efast um COVID-19

Axel Pétur endar svo á því að segja að hann efist um til­vist CO­VID-19 veirunnar. „Í því sam­hengi má velta fyrir sér hver er grunnur sam­komu­banns og hverjir eru í raun á­byrgir fyrir þeim fram­kvæmdum og ekki auð­velt að sjá hvort er um að ræða heil­brigðis­að­gerð eða lög­reglu­að­gerð. Fyrir mér lítur þetta út eins og valda­rán hins svo­kallaða djúpa ríkis sem er em­bættis­manna­kerfið runnið saman við einka­fyrir­tæki og með ó­heil­brigðum tengingum við al­þjóð­lega sjóði og stofnanir.“

Gerir hann þær kröfur að fram fari opin­ber rann­sókn á „á­standi lýð­veldis Ís­lands og hvort það sé í raun og veru fallið. Jafn­framt geri ég kröfu um að lögð verði fram sönnun fyrir til­vist CO­VID-19 sem rétt­lætt hefur sam­komu­bann sem or­sakað hefur þessar ó­þolandi að­stæður á Ís­landi.“