„For­réttinda­klíkurnar á Ís­landi veðja á Sjálf­stæðis­flokkinn“

Jóhann Páll Jóhanns­son, fram­bjóðandi Sam­fylkingarinnar í Reykja­vík, gefur lítið fyrir ný­lega aug­lýsingu Sjálf­stæðis­flokksins þar sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokksins er í fyrir­rúmi.

Í aug­lýsingunni stendur ein­fald­lega: „Okkar stefna snýst um að veðja á ein­stak­linginn.“ Jóhann Páll gefur lítið fyrir þá full­yrðingu og spyr hvaða ein­stak­lingur það sé sem Sjálf­stæðis­flokkurinn veðjar á?

„Er það ör­orku­líf­eyris­þeginn sem reiðir sig á grunn­bætur langt undir lág­marks­launum og er refsað með himin­háum jaðar­sköttum í formi tekju­tengdra skerðinga þegar hann stígur inn á vinnu­markaðinn?

Veðjar Sjálf­stæðis­flokkurinn á náms­manninn sem þarf að vinna meira sam­hliða námi en náms­menn á hinum Norður­löndunum vegna lágra fram­færslu­lána og lágs frí­tekju­marks en er neitað um at­vinnu­leysis­tryggingar?“

Segir flokkinn veðja á þá sem þéna best og eiga mest

Jóhann Páll heldur á­fram og nefnir þá sem misst hafa vinnuna í kóróna­kreppunni. Segir hann Bjarna hafa talað fyrir því að bótunum sé haldið lágum svo fólk hafi „nauð­syn­lega hvata“ til að vinna.

„Af­leiðingarnar af þeirri stefnu sjáum við í ný­legri skýrslu Vörðu, rann­sóknar­stofnunar vinnu­markaðarins, þar sem fram kemur að helmingur at­vinnu­lausra eigi erfitt með að ná endum saman og meiri­hlutinn hafi þurft að neita sér um heil­brigðis­þjónustu undan­farna mánuði,“ skrifar Jóhann Páll.

Hann segir Sjálf­stæðis­flokkinn ekki veðja á þetta fólk heldur þá sem eigi mest og þéni best. „For­stjórann á ofur­laununum sem prísar sig sælan að hvergi á Norð­ur­lönd­un­um greið­ir há­­tekju­­fólk jafn lága skatta og á Ís­landi. Eig­anda stór­út­gerðarinnar sem fær út­hlutaðan kvóta langt undir markaðs­verði, greiðir sér 200-föld árs­laun fisk­vinnslu­starfs­mannsins í arð en borgar miklu lægra skatt­hlut­fall af tekjunum sínum en hann,“ skrifar Jóhann Páll.

Hann segir for­réttinda­klíkurnar á Ís­landi veðja á Sjálf­stæðis­flokkinn. Að flokkurinn verði á­fram við völd og haldi á­fram að verja hags­muni þeirra með kjafti og klóm.

„Við hin skulum veðja hvert á annað og sam­fé­lagið allt. Vera saman í þessu – hjálpast að við að reisa Ís­land upp úr kórónu­kreppunni án þess að ó­jöfnuður aukist. Lækka jaðar­skatta ör­yrkja, eldri borgara og barna­fjöl­skyldna jafn­vel þótt það kalli á að að­eins þyngri byrðar verði lagðar á hópana sem eiga og þéna mest. Ráða bót á undir­mönnun al­manna­þjónustunnar, styðja og vald­efla þá sem missa vinnuna og skapa fjöl­breytt störf út um allt land. Um þetta snúast kosningarnar í haust.“

„Okkar stefna snýst um að veðja á einstaklinginn,“ segir í auglýsingu Sjálfstæðisflokksins sem blasir við okkur á...

Posted by Jóhann Páll Jóhannsson on Tuesday, 2 March 2021