Fórnar­lamb líkams­ára­sinnar í brúð­kaupinu stígur fram: „Mar­bletti, bólginn í and­litinu, lík­lega með brotið upp úr tönn“

Mikil reiði skapaðist í gær­kvöldi meðal íbúa í Lang­holts­hverfi vegna þess að verið var sprengja flug­elda. Um var að ræða brúð­kaup í hverfinu en íbúi á­kvað að biðja veislu­gesti um að hætta að sprengja flug­elda og endaði það með líkams­á­rás.

„Kæru ná­grannar, flug­elda partíið í Skipa­sundinu endaði með líkams­á­rás,“ segir í færslu sem birtist á Face­book-síðu íbúa í Lang­holts­hverfi í Reykja­vík á ellefta tímanum í gær­kvöldi.

DV ræddi við manninn sem birti færsluna um líkams­á­rásina og út­skýrir hann nánar sína hlið á sögunni.

Hann segir að nokkur vitni hafi orðið að á­rásinni og að hann sé stað­fastur á því að þau myndu segja sömu sögu og hann, ef eitt­hvað þá sé hann of vægur í sinni frá­sögn. „Þetta er bara sann­leikurinn eins og hann er og ef þú talar við vitni þá munu þau, ef eitt­hvað er, segja þér ljótari sögu af hinni hliðinni en ég er að gera,“ segir hann.

„Raun­veru­leikinn er að það var harka­leg flug­elda­sýning í gær­kvöldi í Skipa­sundi, án leyfis. Það hringdu nokkrir ná­grannar í lög­regluna, ég asnaðist ekki til að gera það heldur fór út og spurði þau hvort þau áttuðu sig á því að það væri ó­lög­legt að skjóta upp flug­eldum á þessum tíma, bara hvað þau væru að hugsa,“ segir maðurinn í sam­tali við DV.

Hann segir að sprengi­glöðu ná­grannarnir hafi þá svarað sér með skætingi. „Þau litu á hvert annað og sögðu: Já er þetta fá­vitinn þarna í húsinu hinum megin. Ég benti þeim á að það væri ekkert í lagi að haga sér svona í sam­fé­lagi með öðru fólki og hvaðan þau væru eigin­lega, Raufar­höfn? Þá pikkaði annað vitni í mig og sagði að Raufar­höfn væri fín og þá snéri ég mér kurteisis­lega við og baðst af­sökunar,“ segir maðurinn.

„En um leið og ég hafði látið þetta út úr mér þá kom maðurinn alveg í and­litið á mér, potandi í mig, hótandi mér of­beldi. Ég viður­kenni að það fauk í mig þá og ég svaraði honum að ef hann réðist á mig þá færi það ekki vel hjá honum. Ég hótaði honum ekki of­beldi, bara að ef hann stofnaði til of­beldis þá yrði það ekkert skemmti­legt. Ég ýtti honum síðan frá mér þannig að hann tók skref aftur á bak, at­hugaðu skref, hann kastaðist ekki, hann datt ekki og ekki neitt. Ég vildi bara ekki hafa manninn í mér hótandi mér of­beldi. Við það réðist tengda­sonur hans á mig með höggum og spörkum.“

Maðurinn lýsir líkams­á­standi sínu í sam­tali við DV og segist vera með mar­bletti, bólginn í and­litinu og með brotið upp úr tönn. Hægt er að lesa við­talið við manning i heild sinni á DV hér.