For­maður ja­fréttis­hóps KSÍ um strákana okkar: „Ég held þeir hafi misnotað aðstöðu sína of oft"

Kol­brún Hrund Sigur­geirs­dóttir, verk­efna­stýra Jafn­réttis­skóla Reykja­víkur og og for­maður jafn­réttis­hóps KSÍ, var meðal við­mælanda í ítar­legri grein The At­hletic um kyn­ferðis- og of­beldis­brot leik­manna ís­lenska lands­liðsins í fót­bolta á dögunum.

Í við­talinu segir Kolbrún að engar vís­bendingar séu um að fót­bolta­menn eigi í meiri vand­ræðum í sam­skiptum við konur en menn úr öðrum starfs­greinum á Ís­landi, en Vísir greinir frá.

Hún segir hins vegar að fót­bolta­menn fái vegna stöðu sinnar breytta skynjun á veru­leikann þegar þeir byrja að spila fyrir lands­liðið.

„Þeir voru hetjurnar okkar og allir elskuðu þá. En við það fjar­lægðust þeir raun­veru­leikann,“ segir Kol­brún og vísar þar til gull­kynnslóðar ís­lenskrar knatt­spyrnu sem frá á EM-21 árið 2011 og komu Ís­landi á tvö stór­mót.

„Að sjálf­sögðu fengu þeir mikla at­hygli frá stelpum og konum og ég held að þeir hafi ekki vitað hvernig þeir áttu að takast á við það. Og ég held að þeir hafi mis­notað að­stöðu sína of oft og fundist þeir eiga rétt á því sem þeir gerðu,“ segir Kol­brún