Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Félags fanga á Íslandi og frambjóðandi fyrir hönd Samfylkingarinnar í síðustu Alþingiskosningum, birti afar athyglisverða færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Tilefnið var þátturinn Vikan með Gísla Marteini frá því á föstudag.
Einn gesta þáttarins var enginn annar en fyrrum landbúnaðarráðherrann og formaður Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson. Guðni fór þar mikinn og lét mikið að sér kveða, eins og hann hefur verið vanur að gera.
Það var þó ekki megin innihald færslu Guðmundar heldur greindi hann frá skemmtilegri staðreynd. Gefum Guðmundi orðið: „Ég var að horfa á Gísla Martein þáttinn síðan í gær. Einn gesta var Guðni Ágústsson fyrrum ráðherra og ræddi hann mikið um fjölskyldutengls og rollur.“
Þá kom sprengjan: „það er samt eitt sem Guðni veit ekki en það er að ég er hálfbróðir hans Guðna og mér finnst ég vera búinn að þekkja hann alla ævi en hef þó aldrei hitt hann,“ segir Guðmundur.
Hann útskýrir nánar: „Ég var alinn upp síðustu tvo áratugi af bræðrum hans Guðna frá Brúnastöðum en þeir eru fangaverðir á Litla hrauni Þeim tókst þó ekki að heilaþvo mig með framsóknarsápu en lambakjötið er gott,“ segir Guðmundur.
Guðmundur sat inni á Litla Hrauni um nokkurra ára skeið en hefur látið til sín taka á hinum ýmsu vettvöngum eftir að hafa lokið afplánun sinni þar inni. Hugsanlega gerðu bræður Guðna gæfumuninn – hver veit!