For­maður BÍLS óttast komu Uber – segir þjónustunni fylgja of­beldi, þjófnað, manns­hvörf og morð

Daníel Einars­son for­maður BÍLS (Banda­lags ís­lenskra leigu­bif­reiða­stjóra) segir bif­reiða­þjónustuna Uber ala á of­beldis­menningu og vill ekki sjá þjónustuna hér á landi.

„Síðustu daga hefur í öllum helstu miðlum heimsins mátt lesa ó­fagrar lýsingar á starf­semi al­þjóð­lega stór­fyrir­tækisins Uber, byggðar á gögnum sem Was­hington Post og fjöru­tíu aðrir frétta­miðlar höfðu komist yfir. Þar kemur meðal annars fram að stjórn­endur fyrir­tækisins vildu að bíl­stjórar Uber lentu í á­tökum við mót­mælendur og for­stjórinn, Tra­vis Kalanick, sagði bein­línis: „Of­beldi tryggir árangur,“ skrifar Daníelí grein á Vísi.

„Svo er að sjá af gögnunum sem ýmsir af æðstu ráða­mönnum í Evrópu­ríkjum hafi bein­línis étið úr lófa stjórn­enda Uber og gert allt sem í þeirra valdi stóð til að greiða götu þessa ameríska stór­fyrir­tækis. Sem betur fer eru þó líka til stjórn­mála­menn sem vilja fremur þjóna sam­borgurum sínum en al­þjóð­legum risa­fyrir­tækjum,“ bætir hann við.

Daníel segir málið okkur Ís­lendingum heldur betur skylt því nú um nokkra hríð hefur sam­göngu­ráð­herra og for­maður Fram­sóknar­flokksins barist fyrir því að þetta al­þjóð­lega stór­fyrir­tæki fái að stunda þessa starf­semi líka á Ís­land.

„Frum­varp inn­viða­ráð­herra um af­reglu­væðingu leigu­bif­reiða­aksturs dagaði blessunar­lega uppi á ný­liðnu þingi. Bregður þá svo við nú í miðjum sumar­leyfum að nýtt og breytt frum­varp er sett í sam­ráðs­gáttina en ekkert sam­ráð hefur verið haft við okkur leigu­bif­reiða­stjóra. Þá hefur í engu verið tekið til­lit til marg­háttaðra at­huga­semda okkar við áður fram­lögð frum­vörp um okkar at­vinnu­grein,“ skrifar Daníel.

„Þetta er í boði formanns Fram­sóknar­flokksins, flokks sem eitt sinn kenndi sig við fé­lags­hyggju og jöfnuð. Að sama skapi undrumst við leigu­bif­reiða­stjórar af­stöðu Sjálf­stæðis­flokksins í þessu efni – flokksins sem eitt sinn gumaði sig af því að vera flokkur hins sjálf­stæða at­vinnu­rekanda og vildi að at­vinnu­tæki­færin væru sem mest í höndum borgaranna sjálfra.“

„Þrátt fyrir upp­ljóstranir af Uber nú eru þetta alls ekkert nýjar fréttir fyrir okkur sem fylgst höfum með ömur­legri þróun þessara mála í ýmsum ná­granna­landanna. Reglu­lega hefur verið greint frá hneykslis­málum tengdum Uber í fjöl­miðlum, allt frá mis­góðri reynslu við­skipta­vina af þjónustunni yfir í of­beldi, þjófnaði, manns­hvörf og morð,“ skrifar hann síðan.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.