For­maður BHM segir á­kvörðun Sól­veigar vekja óhug: „Fróð­legt að sjá hvort fram komi form­leg til­kynning um hóp­upp­sögn“

Frið­rik Jóns­son, for­maður Banda­lag Há­skóla­manna, segir fréttir að yfir­vofandi hóp­upp­sögn starfs­manna vekja óhug í nýjum pistli á Face­book.

„Ýmis­legt orkar hér tví­mælis að því er virðist og nokkuð lík­legt að ef hér væri á ferð at­vinnu­rekandi innan vé­banda Sam­taka at­vinnu­lífsins sem færi fram með þessum hætti að við­brögð verka­lýðs­hreyfingarinnar yrðu af­dráttar­laus,“ skrifar Frið­rik.

„Hér á greini­lega að losa sig við „ó­æski­lega starfs­menn“. Vissu­lega er það svo að ef starfs­menn t.d. í fé­lags­pólitísku um­hverfi vinna bein­línis gegn lýð­ræðis­lega kjörinni for­ystu að þá verður eitt­hvað undan að láta. Hér er hins vegar beitt öðrum rökum sem hver um sig vekja upp enn frekari spurningar,“ bætir Frið­rik við.

„Það er vísað í skipu­lags­breytingar, breytt hæfnis­við­mið og starfs­lýsingar. Við í verka­lýðs­hreyfingunni þekkjum þessar skýringar af engu öðru en að hafa þann til­gang að lækka laun. Það að verka­lýðs­fé­lag gangi fram með þeim hætti er „at­hyglis­vert“ svo ekki sé meira sagt.“

„Það er vísað í jafn­launa­staðal. Sá staðall er nú yfir­leitt nýttur til að hækka laun til að ná jöfnuði milli kynja. Það er „ný­lunda“, svo ekki sé meira sagt, að hann sé mis­notaður til að rétt­læta upp­sagnir.“

„Í ljósi starfs­öryggis starfs­fólk Eflingar – ef það er svo að laun þar séu hærri en gengur og gerist – er kannski ekki ó­eðli­legt að þau njóti þess með bættum kjörum hvað það er greini­lega hverfult að starfa á þeirra vett­vangi.

Það verður svo fróð­legt að sjá hvort fram komi form­leg til­kynning um hóp­upp­sögn frá Eflingu,“ skrifar Frið­rik að lokum.