Foreldrarnir sýndu Ólafi bréfið: Kaldhæðnisleg undirskrift starfsmannsins vakti athygli

Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, segir að áhyggjufullir foreldrar barns hafi snúið sér til hans fyrir skömmu og sýnt honum bréf sem þeim barst frá Reykjavíkurborg á dögunum.

Um er að ræða foreldra barns sem er fætt árið 2015 og er með einhverfu. Á barnið því að byrja skólagöngu sína í haust. Ólafur bendir á að samkvæmt mati Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er barninu best borgið í sérdeild fyrir einhverfa og var því sótt um þar fyrir barnið.

„Foreldrum barnsins barst svar frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar 21. apríl með eftirfarandi yfirskrift: „Fyrirhuguð synjun umsóknar um skólavist í sérhæfðri sérdeild fyrir einhverfa nemendur.“ Í bréfinu kemur fram að sótt hafi verið um fyrir 38 nemendur í sérdeildum en aðeins átta pláss séu til ráðstöfunar,“ segir Ólafur í aðsendri grein á vef Vísis um málið.

Ólafur segir að þetta þýði að af 38 nemendum með einhverfu komist átta að, þ.e. um 21% umsækjenda. „Þetta þýðir að hin 80 prósentin, 30 börn, njóta ekki lögbundins réttar um kennslu við sitt hæfi. Stöldrum við. Foreldrar sóttu ekki um ölmusu eða gjafir í þágu barns síns. Þau lögðu fram umsókn um lögvarinn rétt barnsins til að fá kennslu við sitt hæfi. Þeim er svarað með tölfræðilegum upplýsingum sem ekkert erindi eiga til þeirra.“

Ólafur er þeirrar skoðunar að heiðarlegra hefði verið af borgaryfirvöldum að segja bara beint út að þau skeyti ekki um að mæta börnum sem þurfa skólavist í sérhæfðri sérdeild.

„Lögvarinn réttur barna skipti þau engu máli ekki frekar en lögboðin skylda sveitarfélagsins til að sjá öllum nemendum grunnskóla kennslu við sitt hæfi. Kaldhæðnislegt má telja að sá sem undirritar bréf borgaryfirvalda ber starfsheitið verkefnastjóri menntunar fyrir alla. Alla? Nei, bréfið staðfestir að svo er ekki.“

Ólafur fer nánar yfir málið og segir það ótækt að allir nemendur grunnskóla geti ekki fengið kennslu við sitt hæfi. „Reykjavíkurborg hefur enga heimild til að synja barninu um skólavist við sitt hæfi. Reykjavíkurborg ber að lögum að tryggja barninu kennslu við sitt hæfi. Frá þeirri skyldu eru engar undantekningar.“

Grein Ólafs í heild sinni.