Sigurður Hólm Gunnarsson og Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir, foreldrar í Rimahverfi í Grafarvogi, krefjast þess að gripið verði til einhverskonar aðgerða vegna manns sem áreitt hefur börn í hverfinu kynferðislega. Þau segja að þetta hafi gerst ítrekað, jafnvel daglega.
DV fjallaði fyrst um málið á sunnudaginn og því var svo fylgt eftir í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánudag.
Fjölskyldufaðir í Rimahverfi, sem ræddi málið við DV, sagðist vera til í að gera hvað sem er til að þetta hætti og þess vegna færi hann fram með málið í fjölmiðla. Eiginkona mannsins varð fyrir þeirri reynslu á föstudag að nágranni þeirra beraði sig í glugga íbúðar sinnar og fitlaði við kynfæri sín. Fyrir utan húsið voru börn að leik. Í frétt DV var þess getið að maðurinn hefði hlotið þrjá dóma fyrir samskonar athæfi.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánudag kom fram að tveir níu ára drengir hafi orðið vitni að manninum bera sig í tvígang í lok síðasta árs. Foreldrar drengjanna tilkynntu málið til lögreglu.
Í grein sem þau Sigurður og Ragnheiður skrifa og birtist á Vísi í morgun segja þau að umræddur „hverfisperri“ fái að halda gjörðum sínum áfram nánast óáreittur.
„Hann áreitir börnin í hverfinu kynferðislega dag eftir dag, viku eftir viku, áratugum saman. Hangir í glugganum og fróar sér yfir börnunum sem leika sér á leikvellinum fyrir framan stofugluggann hans. Hann hefur verið kærður margsinnis, einu sinni dæmdur og allir vita af honum en ekkert er gert,“ segja þau.
Þau segja að barn þeirra hafi orðið fyrir broti mannsins og það sé einu barni of mikið. „Það barn þurfti að fara í Barnahús og gefa skýrslu um athæfið. Það barn varð af saklausum raunveruleika sínum. Það barn varð sært, hrætt, kvíðið, óttaslegið og þurfti að fást við afleiðingar þess að verða fyrir kynferðisbroti. Það barn er orðið að þolanda í lögreglurannsókn.“
Sigurður og Ragnheiður vilja með grein sinni benda á það úrræðaleysi sem virðist vera í samfélaginu til að vernda börn gegn níðingum sem sannarlega hafa gerst sekir um að áreita börn.
„Ekki virðast vera til lög sem banna kynferðisafbrotamönnum að búa í barnmörgu hverfi, hvað þá fyrir framan leikvöll. Réttindi einstaklings sem sannarlega hefur brotið á mörgum börnum trompa rétt barna til að vera örugg í sínu umhverfi. Hér þarf löggjafinn að bregðast við og það tafarlaust. Við sem foreldrar getum ekki sætt okkur við að barnaníðingur hafi tækifæri á því að brjóta ítrekað á börnunum að leik og fengið að búa áfram í miðju íbúðarhverfi,“ segja þau.
Þau bæta við að maður sem vill eða getur ekki hætt að níðast á börnum þurfi að fara eitthvert annað. „Í verndað umhverfi þar sem hann getur fengið aðstoð og þá geta börnin okkar aftur verið örugg úti á róló án þess að eiga í hættu á að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Við krefjumst þess að löggjafinn, barnavernd og sveitarfélagið bregðist við þessum aðstæðum án tafar. Við krefjumst öryggi fyrir börnin okkar. Eitt barn í viðbót er einu barni of mikið.“